Nóg var um að vera um helgina hjá börnum og unglingum í GKG, en fram fór fyrsta stutta spils keppnin í vetur. Alls tóku 29 þátt og spreyttu sig á stöðvavelli sem reyndi á hæfileikana í púttum, vippum og lobbhöggum. Par vallarins var 71 og náðu nokkrir mjög góðum árangri. Úrslit má sjá með því að smella hér. Bestu skorin í hverjum flokki má sjá hér fyrir neðan.

12 ára og yngri stúlkur Skor
Herdís Lilja Þórðardóttir 85

12 ára og yngri drengir Skor
Sigurður Garðarsson 79

13-15 ára drengir Skor
Bragi Aðalsteinsson 73

13-15 ára stúlkur Skor
Freydís Eiríksdóttir 89

16-18 ára piltar Skor
Kristófer Orri Þórðarson 70

16-18 ára stúlkur Skor
Særós Eva Óskarsdóttir 67

Einnig fór fram þriðja púttmótið af níu í púttmótaröð GKG. Heildarúrslit er að finna hér, en besta skor í hverjum flokki má finna hér fyrir neðan.

12 ára og yngri stelpur 9.feb
Eva María Gestsdóttir 30
Herdís Lilja Þórðardóttir 30

12 ára og yngri strákar 9.feb
Viktor Snær Ívarsson 27

13 – 15 ára stúlkur 9.feb
Freydís Eiríksdóttir 33

13 – 15 ára strákar 9.feb
Þorsteinn Breki 30
Páll Hróar Helgason 30
Sólon Baldvin Baldvinsson 30

16 – 18 ára piltar 9.feb
Sigurjón Guðmundsson 29

Minnum á næsta púttmót sem fer fram 23. febrúar.