Verðlaunalistinn í Minningarmótinu til styrktar íþróttastarfinu okkar er orðinn mjög glæsilegur. Enn er hægt að skrá sig í mótið og viljum við hvetja áhugasama um að taka þátt í þessu skemmtilega móti, og með því heiðra fallna félaga og styrkja starfið í leiðinni. Myndin sem fylgir fréttinni sýnir Íslandsmeistara í unglingaflokkum 2016, en þar sigruðu Hlynur, Ingi Rúnar, Sigurður Arnar og Hulda Clara í sínum flokkum. GKG átti því 4 af 6 Íslandsmeisturum í unglingaflokkum í ár.

Upplýsingar:
Minningarmót til styrktar íþrótta- og afrekssviði GKG verður haldið á Leirdalsvelli GKG laugardaginn 10. september. Í mótinu höldum við sérstaklega uppi minningu þeirra Jóns Ólafssonar og Ólafs E. Ólafssonar, sem báðir létust óvænt og skyndilega í blóma lífsins. Báðir áttu drjúgan þátt í að gera GKG að því sem klúbburinn er í dag.

Keppnisfyrirkomulag:
Mótið er punktamót og er hámarksforgjöf 24 hjá körlum og 28 hjá konum. Stórglæsileg verðlaun fyrir 3 efstu sætin í punktakeppni, besta skor án forgjafar og nándarverðlaun á öllum par 3 holum ásamt lengsta upphafshöggi á 12. holu (sér fyrir karla og konur). Dregið verður úr skorkortum við verðlaunaafhendingu sem hefst kl. 19:00.

Punktakeppni:
1. sæti
Flugmiði til áfangastaðar að eigin vali í Ameríku frá Icelandair

2. sæti
ECCO golfskór
Gjafapoki frá Ölgerðinni

3. sæti
FootJoy golfskór
Gjafapoki frá Ölgerðinni

Besta skor án forgjafar
Flugmiði til áfangastaðar að eigin vali í Ameríku frá Icelandair

Ath. Leikmenn verða að hafa virka forgjöf til að geta unnið til verðlauna. Leikmaður getur ekki unnið til verðlauna bæði með og án forgjafar.

Nándarverðlaun:

2. hola
4 hringir á Hvaleyrarvelli
Kippa af Pepsi/Pepsi Max

4. hola
10.000 Inneignarkort frá N1
Kippa af Pepsi/Pepsi Max

9. hola
Glaðningur frá Íslandsbanka
Kippa af Pepsi/Pepsi Max

11. hola
Gjafapoki frá Ölgerðinni
Kippa af Pepsi/Pepsi Max

13. hola
10.000 Inneignarkort frá N1
Kippa af Pepsi/Pepsi Max

17. hola
Glaðningur frá Íslandsbanka
Kippa af Pepsi/Pepsi Max

Lengsta upphafshögg á 12. holu (karl)
4 hringir á Hvaleyrarvelli
Kippa af Pepsi/Pepsi Max

Lengsta upphafshögg á 12. holu (kona)
Golfhringur fyrir 4 á golfvöllum GR
Kippa af Pepsi/Pepsi Max

Útdráttarverðlaun:
Flugmiði til áfangastaðar að eigin vali í Evrópu frá Icelandair
FootJoy polo bolur
FootJoy golfhanskar
Titleist derhúfa
Kassi af Stellu Artois
Kassi af Stellu Artois
Rúta af Egils Gull
Rúta af Egils Gull
Rúta af Egils Gull
Rauðvínsflaska
Hvítvínsflaska
Kippa af Pepsi/Pepsi Max
Kippa af Pepsi/Pepsi Max

Þeir sem eru dregnir út verða að vera á staðnum til að hljóta vinninginn. Þeir sem hafa þegar unnið til verðlauna eru ekki gjaldgengir í útdráttarverðlaun. Kylfingar þurfa að hafa náð 20 ára aldri til þess að taka við áfengisverðlaunum.

Ef allir keppendur mótsins ljúka leik undir 4 klst og 30 mínútum þá verður dregin út vikuferð með VITAgolf til Spánar eða Portúgal, ein ferð fyrir karl og ein fyrir konu. Keppendur þurfa ekki að vera viðstaddir við útdrátt.

Mulligan verður með eðaltilboð á völdum réttum og hefst verðlaunaafhending kl. 19:00.

Verð einungis 5.500 kr

Hlökkum til að sjá ykkur,
Íþrótta- og afreksnefnd GKG