Vegna mikillar vætutíðar verðum við að takmarka notkun golfbíla á Leirdalsvelli og Mýrinni. Við förum þess vinsamlegast á leit við þá sem eru á golfbílum að fara í einu og öllu eftir eftifrandi reglum.

  1. Golfbíla skal aka á malbikuðum stígum allsstaðar þar sem það er kostur.
  2. Ef ekki er malbikaður stígur þá skal aka bílnum í karganum
  3. Það er með öllu óheimilt að aka golfbíl inn á brautir
  4. Á sjöttu holu skal keyra golfbíla upp á möninni sem er vinstra megin við braut.

Við viljum forðast það í lengstu lög að banna umferð golfbíla, slíkt myndi útiloka golfiðkun fjölda félagsmanna sem eiga við veikindi eða fötlun að stríða ásamt öllum þeim heldri borgurum sem geta ekki spilað golf án golfbíls. Þess vegna er okkur í mun að þeir sem aka golfbíl um velli GKG virði ofangreindar reglur.

Starfsfólk GKG