Mánudaginn 9. maí verður haldinn vinnu og hreinsunardagur hjá GKG. Unnið verður frá klukkan 16:00 til 19:00 og endar dagurinn á pylsugrilli hjá Ólafi framkvæmdarstjóra.

Hér eru helstu verkefni dagsins:

  • Hreinsun og tiltekt umhverfis skála og bílaplan.
  • Tína allt rusl af vallarsvæðinu.
  • Tyrfa við æfingasvæði ca 650 fermetra.
  • Raka og gera klárann vegkantinn fyrir tyrfingu.
  • Bera viðarvörn á pro shop og sólpallinn ef veður leyfir.
  • Áburður á tré.
  • Einnig verður trjáræktarnefndin með verkefni á sínum snærum.

Sjáumst hress og kát á vinnudeginum.

Vallarstjóri.