Hérna eru myndir af nýja hluta stéttarinnar, en eins og félagar kannski muna eftir náði gamli hlutinn aðeins rétt út fyrir ProShop, en núna hefur töluverðu verið bætt við:

Á myndinni fyrir neðan sést glitta í Guðmund vallarstjóra og menn hans á meðan þeir leggja lokahönd á stéttina:

Bárður, hundur Guðmundar stendur sperrtur á nýju stéttinni og tekur verkið út:

Að lokum má síðan sjá tvær myndir af nýju púttflötina sem nú bíður þökunar. Kylfingar geta hér séð glöggt hvernig það kemur til með að líta út. Greinilega mikil framför frá fyrri púttlföt: