SUMARÆFINGAR 2026

ATH!! Við Opnum fyrir skráningar á sumaræfingar í apríl.

Sumaræfingarnar standa yfir frá 10.06.-22.08.

Engar æfingar eru í Meistaramótsviku (06.-12.07.) enda hvetjum við alla okkar iðkendur að taka þátt í því skemmtilega móti!

Athugið að áætlaðir æfingatímar eru birtir með fyrirvara um breytingar.

Sjá verðskrá hér.

Skrá á Sumaræfingar

Tvær æfingar á viku er innifaldar í sumargjaldinu plús ein valfrjáls aukaæfing, sumargjaldinu fylgir einnig félagsaðild hjá GKG, þar á meðal Golfbox númer svo hægt sé að spila velli GKG.

Á myndunum hér er hægt að sjá nánar hvað er innifalið í gjöldunum.

Athugið að það er hámarksfjöldi í hópa hjá okkur og er það öryggis iðkenda vegna. Í golfi er verið að sveifla kylfum og slá í harða bolta og það er algjört grundvallaratriði að fjöldi í hópum sé hæfilegur fyrir þann fjölda þjálfara sem eru á staðnum. Við vonum að þið sýnið þessu skilning og við reynum eftir bestu getu að koma til móts við iðkendur.