
Liðakeppni GKG 2026
Liðakeppnin vinsæla hefst að nýju þann 24. maí 2026
Þetta er án efa eitt skemmtilegasta mót ársins, þar sem að kylfingar geta fengið að spila með Ryder/Solheim Cup fyrirkomulagi, allt sumarið!
Leikfyrirkomulagið er eftirfarandi:
Lágmarks fjöldi leikmanna í liði er sex en hámarks fjöldi átta. Um er að ræða innanfélagsmót þar sem hámarks grunnforgjöf er 30.
Hámarks fjöldi liða í keppninni er 24. Sjá fjölda umferða og fyrirkomulag á mynd, með þeim fyrirvara að fjöldi liða getur haft áhrif á fjölda umferða auk þess sem mótsstjórn er heimilt að breyta leikskipulaginu ef lið eru 16 eða færri.
Fjórir liðsmenn keppa í hverri umferð og allt að fjórir eru því í hvíld. Spilaðar eru 18 holur á Leirdalsvelli. Sett eru tímamörk fyrir hverja umferð, sjá í keppnisdagatali neðar á síðunni.
Ekki er heimilt að hefja leik í riðlakeppninni á milli kl. 16:00 og 18:00 á virkum dögum.
Keppt er í fjórum riðlum og raðað er í riðla eftir meðalforgjöf liða þar sem notast er við forgjafir allra leikmanna við útreikning á liðsforgjöf. Þau lið sem verða í tveimur efstu sætunum í hverjum riðli í riðlahluta keppninnar halda áfram og fara í 8 liða úrslit, sjá fyrirkomulag á mynd. Þau lið sem vinna sína leiki í 8 liða úrslitunum fara í undanúrslit og í framhaldinu verður keppt um gull, silfur og brons 5. september 2026.
Kylfingar þeirra liða sem ekki keppa um verðlaunasæti hafa þátttökurétt í punktamóti sem haldið verður sama dag og úrslitin (að hámarki 100 keppendur).
Það kvöld verður haldið sameiginlegt lokahóf fyrir þátttakendur liðakeppninnar ásamt því að veitt verða verðlaun fyrir mánudagsmótaröðina og holukeppni GKG. Mulligan gengið verður með tilboð á ómótstæðilegum kvöldverði í lokahófinu.
Keppt er um glæsilegan farandbikar og keppendur í sigurliðinu fá verðlaunapeninga. Auk þess gefur mótstjórn sér leyfi til að verðlauna aukalega fyrir það sem henni finnst standa upp úr í keppninni á einhvern hátt.
Skráningu lýkur 20. apríl
- Þau lið frá fyrra ári sem lentu ekki í neðsta sæti í sínum riðli hafa forgangsrétt í mótið en þurfa engu að síður að tilkynna skráningu áður en fresti lýkur.
- Lið telst frá fyrra ári ef í því eru 5 eða fleiri liðmenn frá því ári.
- Ef fleiri en 24 lið sækja um munu liðin sem lenda í neðsta sæti í sínum riðli þurfa að heyja umspil við ný lið til að eiga möguleika á að tryggja sig inn í næsta keppnistímabil. Tapi þau sætinu flokkast þau sem ný lið eftir það.
- Sæki færri en fjögur ný lið skal varpa hlutkesti hvaða neðstu lið frá árinu áður leiki 18 holu umspil við ný lið.
- Sæki fleiri en fjögur ný lið um þátttöku í mótinu skal dregið um hvaða fjögur ný lið heyji umspil við fjögur neðstu liðinu úr keppninni árið áður.
- Mótsstjórn er heimilt að breyta ofangreindu leikskipulagi ef lið eru 16 eða færri.
- Skila þarf inn nafni liðs í skráningunni og það þarf að vera fullskipað tímanlega fyrir keppni svo það fari í réttan forgjafarhóp.
- Skráning í mótið fer fram með því að senda tölvupóst á [email protected]
- Það sem þarf að koma fram í póstinum er (í excel skjali):
- Nafn liðs
- Leikmenn (Fullt nafn + aðildarnúmer, forgjöf allra leikmanna, lágmark 6 aðilar hámark 8)
- Nafn, netfang og símanúmer liðsstjóra
- Það sem þarf að koma fram í póstinum er (í excel skjali):
Verð fyrir hvert lið í Liðakeppni GKG 2026 er 28.000kr.
Þátttökugjaldið greiðist um leið og lið hefur fengið staðfestingu á þátttöku.
Reikningsnúmerið er 133-26-200843 kt. 650394-2089 (senda kvittun fyrir greiðslu á [email protected]
Áður en keppnin hefst funda liðsstjórar með mótsstjóra í íþróttamiðstöðinni þar sem farið verður yfir leikreglur mótsins.
Einstaklingar sem vilja freista þess að komast í lið sendi póst [email protected]
Sérstök Fb síða verður stofnuð til að halda utan um keppnina.
Mótsstjórn keppninnar skipa Ingibjörg Hinriksdóttir, Ragnheiður Stephensen, Bergsveinn Þórarinsson og Úlfar Jónsson.
Mótsstjóri er Ingibjörg Hinriksdóttir
Netfang: [email protected]
Sími Ingibjargar: 822 9918
Sími Úlfars: 862 9204

Sigurvegarar ársins 2025 voru, annað árið í röð, Jimenez Group
Á myndinni (frá vinstri) eru Davíð Stefán Guðmundsson, Ragnar Þórður Jónasson, Pálmi Þór Gunnarsson, Njörður Árnason, Elmar Þorbergsson, Pálmi Jónsson og Jón Sigurðsson. Einnig í liðinu var Daði Hannesson.
| Ár | Sigurlið |
| 2025 | Jimenez Group |
| 2024 | Jimenez Group |
| 2023 | Öldungarnir |
| 2022 | RainX |
| 2021 | Seven Eagles and Albatross |
| 2020 | Total Sláttuvélar |
| 2019 | Total 1 og Total 2 deildu titlinum |

