Undan farin ár hefur verið bylting í rafknúnum ökutækjum, t.d. höfum verið að senda fólk af vellinum á hlaupahjólum. Eins eru komnir á markaðinn götuskráðir bílar sem komast upp í 80 km hraða
Til að gæta valla okkar og minnka slysahættu hefur stjórn GKG sett eftirfarandi reglur um ökutæki á völlum GKG:

  • Heilmiluð ökutæki:
    • Golfbílar GKG
    • Vinnutæki GKG
    • Ökutæki vegna framkvæmda (með segulmerki GKG)
    • Ökutæki vegna móta (með segulmerki GKG)
  • Önnur götuskráð ökutæki eru óheimil á völlum GKG
  • Golfbílar í eigu kylfinga þurfa samþykki frá vallarstjóra GKG
  • Bjóðum þeim sem ekki geta spilað án golfbíls ársleigu, sjá verðskrá
  • Aldurstakmark á golfbílum er 17 ára