Niðjamót GKG
4. júlí 2026
Sigurvegarar frá upphafi
| 2025 | Ingibjörg Þórdís Jónsdóttir | Jakob Þór Möller |
| 2024 | Lilja Þorvarðardóttir | Helga Gunnarsdóttir |
| 2023 | María Kristín Elísdóttir | Elís Ingvarsson |
| 2022 | María Kristín Elísdóttir | Elís Ingvarsson |
| 2021 | Jón Þór Jónsson | Jóhann Þór Jónsson |
| 2020 | Anna Júlía Ólafsdóttir | Ólafur Jónsson |
| 2019 | Randver Ármannsson | Jakob Emil Pálmason |
| 2018 | Hörður Jóhannesson | Hjalti Harðarson |
| 2017 | Anna Júlía Ólafsdóttir | Ólafur Jónsson |
| 2016 | Kolbeinn Guðjónsson | Jónína Pálsdóttir |
| 2015 | Elísabet Ágústsdóttir | Ágúst Arnbjörnsson |
| 2014 | Þórir Gunnarsson | Gunnar Jónsson |
| 2013 | Þórir Gunnarsson | Gunnar Jónsson |
| 2012 | Ragnar Már Garðarsson | Ragnheiður Sigurðardóttir |
| 2011 | Ekkert mót | |
| 2010 | Emil Þ. Ragnarsson | Hólmfríður Einarsdóttir |
| 2009 | Særós Eva Óskarsdóttir | Óskar Garðarsson |
| 2008 | Lovísa K. Sigurjónsdóttir | Sigurjón Gunnarsson |
| 2008 | Emil Þ. Ragnarsson | Ragnar Þ. Ragnarsson |
| 2007 | Guðjón I. Kristjánsson | Kristján Guðjónsson |
| 2006 | Bjarki F. Júlíusson | Karl J. Sigurgíslason |
| 2005 | Hansína Þorkelsdóttir | Rut Héðinsdóttir |
Niðjamót GKG hefur heldur betur fest sig í sessi sem undanfari Meistaramótsins.
Hugmyndin er sú að mismunandi kynslóðir skipi lið, annar liðsmaðurinn sé niðji hins, þ.e. barn (stjúpbarn) og foreldri eða afi og amma. Hugtakið hefur svo verið víkkað út til þess að taka til tengdabarna og tengdaforeldra/afa/ömmu. Mótsstjórn getur samþykkt annars konar fjölskyldutengsl, t.d. systkini eða frændsystkini.
Einungis lið sem eru skipuð mismunandi kynslóðum geta geta orðið Niðjamótsmeistarar. Önnur fjölskyldutengsl eins og systkini eða frændsystkini geta unnið til verðlauna miðað við árangur en ekki orðið Niðjamótsmeistarar.
Keppnisfyrirkomulagið er punktakeppni með greensome fyrirkomulagi, sem felur í sér að báðir liðsmenn slá af teig og skiptast síðan á, þannig að sá sem ekki á upphafshögg slær annað högg.
Forgjöf liðs verður 40% af leikforgjöf þess sem hærri hefur forgjöfina og 60% af forgjöf þess sem lægri hefur hana.
Verðlaun verða veitt fyrir efstu sæti, nándarverðlaun á öllum par 3 holum og súpa og brauð að leik loknum.
Þátttökugjöld renna óskipt til barna- og unglingastarfs GKG
Ræst verður af öllum teigum kl. 08:30. Skráning í mótið er hafin í GolfBox, smellið hér. Mótstjaldið er kr. 10.000,- fyrir liðið.
