Meistaramót GKG fer fram dagana 5.-11. júlí 2026
Skráning hefst þriðjudaginn 16. júní kl. 12
Meistaramótið er hápunkturinn í mótahaldi klúbbsins, en mótið stendur yfir í 7 daga, þar sem keppt er í alls 27 flokkum, allt frá meistaraflokkum til 5. flokks, frá börnum 10 ára og yngri, til 70 ára og eldri. Sannkölluð golfhátíð.
Meistaramótinu lýkur með lokahófi og verðlaunaafhendingu í kjölfar lokahrings á laugardegi þar sem félagsmenn eiga góða kvöldstund saman.
Sumir flokkar leika í 3 daga móti meðan aðrir leika í 4 daga. Dagskrá flokka og aðrar upplýsingar er hægt að skoða á tenglum hér á síðunni.
Skráning er hér fyrir neðan. Fyrstir koma fyrstir fá.
Skráning í Mfl., 1.fl., 2. fl., 3. fl., 4. fl. karla, 50 og 65 ára og eldri, 15-16 ára. – SKRÁNING LOKUÐ
Skráning í 4. fl. kvk, 5. fl. kk, 70+.
Skráning í barnaflokka 10, 12 og 14 ára og yngri.
Mótstjórn 2026 skipa: Ragnheiður Stephensen mótsstjóri, Agnar Már Jónsson, Bergsveinn Þórarinsson, Úlfar Jónsson

