SUMARÆFINGAR 2026

Sumaræfingarnar standa yfir frá 15. júní – 25. sept

Sumaræfingar verða 2x í viku í allt sumar og út 25. september. Krakkarnir læra grunnatriðin í púttum, vippum og sveiflu. Einnig verður farið yfir allskonar reglur golfíþróttarinnar. 

Athugið að hægt er að velja um fleiri en einn hóp og því hægt að skrá sig í þann hóp sem hentar best tímalega séð. Fjöldatakmark er í hvern hóp.

Verðskrá:

7. flokkur, 6. flokkur og 5. flokkur(12 ára og yngri): 62.000kr

2. flokkur, 3. flokkur og 4. flokkur (13-18 ára): 73.000kr 

Engar æfingar eru í Meistaramótsviku (06.-10.07) enda hvetjum við alla okkar iðkendur að taka þátt í því skemmtilega móti!

Ef spurningar vakna varðandi sumaræfingar sendið þá á haukur@gkg.is

7. flokkur – 2018-2019

6. flokkur – 2016-2017

5. flokkur – 2014-2015

4. flokkur – 2012-2013

3. flokkur – 2010-2011

2.flokkur – 2008-2009

Skrá á Sumaræfingar

Tvær æfingar á viku er innifaldar í sumargjaldinu. Sumargjaldinu fylgir einnig félagsaðild hjá GKG, þar á meðal Golfbox númer svo hægt sé að spila velli GKG.

Á myndunum hér að neðan er hægt að sjá nánar hvað er innifalið í gjöldunum.

Athugið að það er hámarksfjöldi í hópa hjá okkur og er það öryggis iðkenda vegna. Í golfi er verið að sveifla kylfum og slá í harða bolta og það er algjört grundvallaratriði að fjöldi í hópum sé hæfilegur fyrir þann fjölda þjálfara sem eru á staðnum. Við vonum að þið sýnið þessu skilning og við reynum eftir bestu getu að koma til móts við iðkendur.