Vetraræfingar GKG 2026/27
Við í Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar erum afar stolt af barna og unglingastarfi klúbbsins en starfið hefur verið eitt það stærstu og metnaðarfyllsta á landinu í mörg ár.
Æfingarnar hjá GKG skiptist í sumar tímabil og vetrar tímabil.
Vetrartímabil: 26. október – 28. maí
Æfingar fara fram í Íþróttamiðstöð GKG og einnig gefst kostur á að æfa í Kórnum fyrir þá sem það kjósa. Þjálfunin er í höndum PGA-menntaðra þjálfara ásamt öflugum leiðbeinendum sem leggja áherslu á að kenna rétt grunnatriði golfsins í skemmtilegu og hvetjandi umhverfi.
Iðkendur æfa tvisvar í viku yfir vetrartímabilið. Á æfingum er unnið markvisst að tækni, hreyfiþroska, samhæfingu, golfreglum og golfsiðum með áherslu á að efla bæði færni og ánægju af íþróttinni.
Öll börn og unglingar eru velkomin, hvort sem þau eru að stíga sín fyrstu skref í golfi eða hafa æft áður. Markmið okkar er að skapa jákvætt, öruggt og hvetjandi umhverfi þar sem allir geta notið sín og tekið framförum á sínum eigin hraða.
Skráning og æfingagjöld
Skráning á vetraræfingar opnar 20. Ágúst og æfingar sjálfar hefjast 26. Október.
Þeir sem skrá sig á vetraræfingarnar eru jafnframt velkomnir að mæta og æfa með sínum aldurshópi út september áður en vetrartímabilið hefst formlega.
Vetrargjald fyrir alla hópa sem æfa 2 sinnum í viku er 62.000 kr.
Vetrargjald fyrir 7.flokk sem æfir 1 sinni í viku er 31.000 kr.
Fyrir þau sem hefja æfingar eftir áramót er gjaldið 45.000 kr.
Lokað verður fyrir skráningar 1. mars.
Athugið: Aðgangur að golfvöllum GKG og Golfbox er ekki innifalinn í vetrargjaldinu en verður hluti af sumargjaldinu.
Hópar
7. flokkur – Einn hópur. Ein æfing á viku í 50 mín. Hámarksfjöldi í hópinn er 24.
6. flokkur – Þrír hópar. Tvær æfingar á viku í 55 mín. Hámarksfjöldi í hóp er 20.
5. flokkur – Þrír hópar. Tvær æfingar á viku í 55 mín. Hámarksfjöldi í hóp er 20.
4. flokkur – Þrír hópar. Tvær æfingar á viku í 55 mín. Hámarksfjöldi í hóp er 20.
3. flokkur/2 .flokkur – Einn hópur. Tvær æfingar á viku í 55 mín. Hámarksfjöldi í hóp er 20.
Engar æfingar eru á tímabilinu 21.sept til 23. Okt, en þá taka þjálfarar okkar sitt sumarfrí eftir annasamt sumartímabil.
Þjálfarar
- Aron Snær Júlíusson
- Andrés Jón Davíðsson
- Hrafnhildur Guðjónsdóttir
- Haukur Már Ólafsson
7-10 ára
Markmið með þjálfun þeirra yngstu eru fyrst og fremst að móta grunnhreyfingar og hreyfiþroska. Áhersla er lögð á skemmtanagildi og eru þar golftengdir leikir þar í fyrirrúm. Varðandi golftæknina skal lögð mikil áhersla á grunnatriðin, þ.e. Grip, Stöðu og Mið.
11-14 ára
Meginmarkmið í þjálfun eru grunnatriði sveiflunnar og stutta spilsins. Á sumaræfingum er nánar farið út í þjálfun leikskipulags í löngum sem stuttum höggum. Mikil áhersla skal lögð á samhæfingu og jafnvægi. Þetta aldurstímabil er eitt það mikilvægasta, þar sem nákvæmari þjálfun tækniatriða golfsins hefst á þessu skeiði.
15-18 ára
Á þessu skeiði er rétt að huga að aukinni sérhæfingu í þeim hreyfingum sem skapa golfsveifluna. Að auki verða þátttakendur hvattir til að auka keppnisþátttöku sína, þ.e. að reyna meira á það sem þau hafa lært á æfingum, og beita því í keppni.
Fyrir frekari upplýsingar
Fyrir frekari upplýsingar um æfingarnar má hafa samband við Hrafnhildi Guðjónsdóttur á hrafnhildur@gkg.is.

