Floridana mótaröð byrjenda 2025

GKG býður upp á barnamótaröð í 18. skipti sumarið 2025 sem kallast Floridana mótaröðin, en Ölgerðin styrkir barna og unglingastarf GKG. Þátttökurétt hafa allir félagsmenn GKG sem eru 16 ára eða yngri (fæddir 2009 eða yngri) og hafa forgjöf á bilinu 36-54. Keppt er í flokkum drengja og stúlkna 10 ára og yngri, 11-12 ára og og 13-16 ára.

Mótaröðin er punktakeppni sem fer fram á Mýrinni hjá GKG og eru spilaðar 9 holur í hverju móti. Allir keppendur leika á fremstu teigunum, þ.e. gullteigunum, sem hafa vallarmat og því hægt að leika á þeim til forgjafar. 

  • Kylfuberar eru nauðsynlegir svo allt fari vel fram, þ.e. foreldri, eldra systkini eða annar aðstandandi.
  • Eftir 9 högg er skylda að taka upp og skrifa 10 högg.
  • Fallreitur skal vera flatarmegin þegar slegið er yfir vítasvæði.
  • Ef bolti týnist eða slegið út fyrir vallarmörk er lausnin eins og um vítasvæði væri að ræða. Eitt högg í víti frá því svæði sem boltinn týnist og leikið áfram.

Stefnt er að 7 mótum í sumar og taka þarf þátt í 3 mótum til að telja í heildarkeppninni. Veitt verða verðlaun fyrir bestan árangur í lok sumars þar sem allir fá líka þátttökumedalíu. Teiggjöf í hverju móti verður Floridana safi og golfbolti fyrir hvert mót sem tekið er þátt í.

Þátttaka er ókeypis en til þess að geta tekið þátt þarf að skrá sig í mótið í mótaskrá Golfbox hér. Hægt er að skrá sig þangað til kl. 12:00 daginn fyrir mótsdag, að því gefnu að laus sæti séu í mótið. Ræst er út á milli 13:00 og 15:00, en fer þó eftir fjölda þátttakenda, þ.e. fyrsta holl fer kl. 13 og síðan miðast það við fjölda keppenda hversu lengi er ræst út. Barnamótaröðin hefur verið mjög vinsæl undanfarin ár og hafa um 40-60 keppendur verið í hverju móti. Höfuðáhersla er á að krakkarnir fái jákvæða reynslu af því að spila saman.

Gerð er krafa um að foreldri og/eða reyndari kylfingur fylgi hverjum keppanda á þessum mótum, bæði til þess að tryggja að allt fari rétt fram og eins til þess að þau læri sem mest af þessari þátttöku.

Upplýsingar um mótsdaga eru í Golfbox.

Skráning í golfbox er hér.

Í lok september, verður svo haldin vegleg lokahátið ásamt verðlaunaafhendingu.