Gæðahandbók GKG er ætlað að vera leiðarvísir að markvissu starfi félagsins. Markmið handbókarinnar er að ná til sem flestra þátta í starfi félagsins og gera þeim góð skil og vera tæki til stjórnunar og samræmingar á skipulagi og þjálfun. Notkun gæðahandbókarinnar mun stuðla að fagmennsku í starfi félagsins, samvinnu og samheldni almennra félagsmanna og afreksfólks, öflugri vinnu í átt að framtíðarmarkmiðum, útbreiðslu upplýsinga um starfið í félaginu og þróun íþróttastarfsins í heild. Námskráin er sérstaklega ætluð þeim sem sinna starfi innan félagsins en einnig ætluð þeim sem tengjast á einn eða annan hátt starfseminni.

Gæðahandbókin skal vera endurskoðuð reglulega og breytt ef þörf þykir og aðstæður breytast.