Golfleikjanámskeið GKG

SKRÁ Á GOLFLEIKJANÁMSKEIÐ

Um golfleikjanámskeiðið

Á námskeiðunum er lögð áhersla á að kynna íþróttina fyrir börnum í gegnum golftengda leiki og hreyfingu. Nemendum skipt í tvo aldurshópa, 6 til 9 ára og 10 til 12 ára og eftir kyni, sé þess kostur. Námskeiðum lýkur síðan með pylsuveislu og afhendingu viðurkenningarskjals frá GKG

Aðstaða og búnaður

Í ár fara golfleikjanámskeiðin fram hjá GKG.

Börnin hafa með sér nesti og ef veður er óhagstætt þá er hægt að leita skjóls í golfskálanum.

Ekki er nauðsynlegt að eiga golfkylfur til að taka þátt í námskeiðum hjá GKG því búnaður er til láns meðan á námskeiði stendur.

Dagsetningar og tími:

Námskeið 1:  10. júní – 14. júní

Námskeið 2:  18. júní – 21. júní (fjórir dagar)

Námskeið 3:  01. júlí – 05. júlí

Námskeið 4:  15. júlí – 19. júlí  (fullt)

Námskeið 5:  22. júlí – 26. júlí  

Námskeið 6:  6. ágúst – 9. ágúst (fjórir dagar) 

Námskeið 7:  12. ágúst – 15. ágúst (fjórir dagar) 

Hægt er að velja um námskeið kl. 9-12 eða kl. 13-16.

 

Verð:

5 daga námskeið kr. 16.100, 4 daga námskeið kostar kr. 12.880. 

Ath. Þátttaka á golfleikjanámskeiðunum veitir aukafélagsaðild í GKG. Innifalið í aukaaðild er aðgangur að 4 holu æfingavellinum fyrir barnið og fjölskyldumeðlimi til að koma og leika sér á þegar námskeið eru ekki í gangi.

Hægt að stunda æfingar frá 8 ára aldri hjá GKG sem félagsmaður. Nánari upplýsingar um æfingatöflur, verðskrá ofl. er að finna hér.

Ef tekið er þátt í tveimur námskeiðum þá er frír aðgangur að félagsæfingum það sem eftir er af sumartímabilinu. Þó er miðað við lágmark 8 ára á árinu.

 

Markmið golfleikjanámskeiðanna

Að kynna golfíþróttina fyrir börnunum og ýta undir áhuga þeirra á því að leggja stund á þessa fjölskylduvænu íþrótt. Farið er í helstu þætti golfleiksins, allt frá púttum til upphafshögga og eru leiðbeiningar gjarnan í formi golfleikja ýmiss konar. Einnig verður lögð áhersla á að kynna helstu golfsiði og golfreglur fyrir nemendum. Mikilvægt er að á golfnámskeiðinu séu einnig fjölbreyttir leikir sem efla hreyfiþroska barnanna svo sem samhæfingu, liðleika og jafnvægi, enda eru það mikilvægir þættir í hreyfingum golfsveiflunnar. Forgangsatriði námskeiðanna eru að þau séu örugg, skemmtileg, og að börnin njóti sín og þrói jákvætt viðhorf til golfíþróttarinnar.

Leiðbeinendur:

Leiðbeinendur eru úr hópi afrekskylfinga GKG á aldrinum 16 til 21 árs, flest með verulega reynslu af námskeiðshaldi. Þess verður gætt eftir fremsta megni að hópar undir umsjón leiðbeinanda verði ekki skipaðir fleiri en 8 börnum.

Verkstjóri leiðbeinenda 2024 verður Einar Gunnar Guðmundsson. Einar Gunnar er kennari í raftæknigreinum við Tækniskólann og  gegnir einnig stöðu deildarstjóra þar.

Umsjón með skráningum og frekari upplýsingar veita Ástrós Arnarsdóttir, astros@gkg.is og Guðmundur Daníelsson, gummid@gkg.is.

SKRÁ Á GOLFLEIKJANÁMSKEIÐ