Vetraræfingar GKG 2025/26
Vetraræfingar hefjast 1. september.
Við í Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar erum afar stolt af barna og unglingastarfi klúbbsins en starfið hefur verið eitt það stærstu og metnaðarfyllsta á landinu í mörg ár.
Æfingarnar hjá GKG skiptist í sumar tímabil og vetrar tímabil.
Vetrar tímabilið er frá 1.september til 5. júní
Sumar tímabilið er frá 8. júní til 21. ágúst
Æfingar fara fram í Íþróttamiðstöð GKG en einnig er hægt að æfa í Kórnum fyrir þá sem kjósa. PGA menntaðir þjálfarar sjá um æfingarnar og fara yfir það helsta sem þarf að kunna í íþróttinni. Krakkarnir æfa 2x í viku yfir veturinn og einnig ætlum við að vera með pútt mótaröð um helgar sem byrjar í janúar.
Vetrargjaldið fyrir alla hópa er 39.000kr
Inni í því er ekki aðgangur að völlum GKG né aðgangur að Golfbox, það mun hins vegar vera inni í sumargjaldinu.
Fyrir frekari upplýsingar um æfingar sendið á haukur@gkg.is
Þjálfarar:
Haukur Már er menntaður PGA golfkennari og hefur mikla reynslu af golfkennslu og þá sérstaklega í barna og unglingastarfi. Haukur hefur þjálfað hjá GKG til fjölda ára og einnig unnið sem íþróttakennari.
Aron Snær er menntaður PGA golfkennari og hefur þjálfað hjá GKG til fjölda ára. Hann er einnig frábær kylfingur með mikla reynslu af keppnisgolf hérlendis og erlendis. Hann hefur þrisvar orðið Íslandsmeistari.
Sindri Snær er menntaður PGA golfkennari. Hann hefur unnið í mörg ár hjá GKG og hefur nú snúið sér að þjálfun. Hann er liðtækur kylfingur og er með um 2 í forgjöf. Hann er jákvæður karakter sem er alltaf hress og nær vel til krakkana.
Opin æfing er fyrir alla iðkendur sem komast ekki æfingu á sínum hefðbundna æfingatíma. Fyrir alla árganga.





