Voræfingar GKG 2025

Voræfingar hefjast 6. janúar og standa til 6. júní.

Almennirhópar

Afrekshópar

Nú er 1 æfing í viku innifalin í gjöldum barna yngri en 18 ára með öllu því sem fylgir fullum aðgangi hjá golfklúbbi.

Á myndunum hér er hægt að sjá hver verðskráin er og hvað er innifalið í gjöldunum.

Áfram verður algengast að iðkendur séu á 2 æfingum í viku og er það valið í skráningarferlinu á xps og er æfingatíminn einnig valinn þar.

Þau sem æfa 1 sinni í viku biðjum við um að  taka fram í athugasemd í skráningunni hvenær myndi henta best, en við munum raða í hópa eftir áramót. Við munum nýta föstudaga og laugardaga upp í Kór sem sérstakar æfingar fyrir þau sem eru 1x í viku, en sé pláss í hópa sem æfa 2x í viku getum við skoðað það.

Athugið að það er hámarksfjöldi í hópa hjá okkur og er það öryggis iðkenda vegna. Í golfi er verið að sveifla kylfum og slá í harða bolta og það er algjört grundvallaratriði að fjöldi í hópum sé hæfilegur fyrir þann fjölda þjálfara sem eru á staðnum sem og pláss sem er í boði í húsinu. Við vonum að þið sýnið þessu skilning og við reynum eftir bestu getu að koma til móts við iðkendur.

Smelltu hér til að skrá iðkanda á æfingar

Innifalið í gjaldi

 

Íþróttamiðstöðin (GKG golfskáli)

Æfingatímar 6. janúar til 6. júní. Birt með fyrirvara um breytingar.

Æfingatafla GKG Jan-Jún 2025
FlokkurTími
Hópur 1Mán 15:00-16:00 ; Mið 15:00-16:00
Hópur 2Þri 15:00-16:00 ; Fim 15:00-16:00
FlokkurTími
Hópur 1Mán 16:00-17:00 ; Mið 16:00-17:00
Hópur 2Þri 16:00-17:00 ; Fim 16:00-17:00
FlokkurTími
Hópur 1Mán 17:00-18:00 ; Mið 17:00-18:00
Hópur 2Þri 17:00-18:00 ; Fim 17:00-18:00
FlokkurTími
Hópur 1Mán 18:00-19:00 ; Mið 18:00-19:00
FlokkurTími
FramtíðarhópurMán 15:00-16:00; Þri 15:00-16:00; Fim 15:00-16:00; Fös 14:30-16:00
FlokkurTími
KeppnishópurMán 16:00-17:00; Þri 16:00-17:00; Mið frjáls mæting milli 14:00-17:00; Fim 16:00-17:00; Fös 14:30-16:00
Keppnish. pitch æfing Mið 06:30-08:00
FlokkurTími
AfrekshópurMán 17:00-18:00; Þri 17:00-18:00; Mið Frjáls mæting milli 14:00-17:00; Fim 17:00-18:00; Fös 16:00-17:30
Afr.hópur pitch æfingMið 06:30-08:00
FlokkurTími
MeistaraflokkurMán 18:00-19:00; Þri 18:00-19:00; Mið Milli 14:00-17:00; Fim 18:00-19:00; Fös 16:00-17:30
Mfl. stuttaspilMán 20:30-21:30
Mfl. pitch æfingMið 06:30-08:00

 

Kórinn

Æfingatímar 6. janúar til 6. júní. Birt með fyrirvara um breytingar.

Æfingatafla Kór Nóv-Des 2024
HópurTími
Fædd 2016-2017mán + mið 16:00-17:00
Fædd 2014-2015mán + mið 15:00-16:00
Fædd 2012-2013mán + mið 17:00-18:00
Framtíðarhópur Blárþri + fim 14:00-15:00 // fös 14:30-16:00 Íþróttamiðstöð GKG
Smelltu hér til að skrá iðkanda á æfingar

 

Í GKG fer fram öflugt barna- unglinga- og afreksstarf. Við erum með frábæra inniaðstöðu í Íþróttamiðstöðinni og Kórnum.

Kylfingar í almennum hópum geta valið hvort þau æfi í Kórnum eða Íþróttamiðstöðinni, tvisvar í viku, eftir því sem hentar búsetu og tímasetningu æfinga. 

Keppnis- og framtíðarhópar æfa í Íþróttamiðstöðinni eða í Kórnum þrisvar til fjórum sinnum í viku og er valið í þá hópa eftir ástundun, forgjöf og þátttöku og árangri í innanfélags- og GSÍ mótum.