Félagsgjöld 2026

Gjöld miðast við aldur á árinu 2026

Inntökugjald fyrir nýja meðlimi 26 ára og eldri er kr. 45.000 fyrir árið 2026. Innifalið í inntökugjaldinu er fræðsla og hópkennsla sem haldin verður á vordögum með PGA kennara. 

Almenn Verðskrá
Verðskrá GKG-inga
Skrá mig í GKG
GREIÐA FÉLAGSGJÖLD

Hvað er innifalið í félagsgjöldum GKG?

  • Ótakmarkað spil á Leirdalsvelli

  • Ótakmarkað spila á Mýrinni

  • 2 * 30 mínútur í Trackman (fyrir 19 ára og eldri)

  • Aðgangur að æfingasvæði GKG (pitch völlur, driving range, púttflatir og æfingavöllur)

  • Aðgangur að Íþróttamiðstöð GKG (hægt er að æfa sig á púttflötinni, vippa og slá í tjald)

  • Aðgangur að Kórnum (hægt er að æfa sig á púttflötinni, vippa og slá í tjald)

  • 25% afsláttur af golfhermum

Auk þess er að sjálfsögðu ótakmarkaður og ókeypis aðgangur að hinni margrómuðu GKG stemningu !!

Nánari upplýsingar

Sérstyrkir Kópavogs og Garðabæjar

  • Garðabær og Kópavogur veita styrki til barna og unglinga vegna íþróttaiðkunar.
  • Félagsaðild hjá GKG er styrkhæf og eiga foreldrar því rétt á endurgreiðslu frá sínu bæjarfélagi.
  • Sjá meira um barna- og unglingastarf GKG hér.

Meðlimum GKG er bent á að stéttarfélög, atvinnurekendur og jafnvel bæjarfélög eru dugleg við að styrkja starfsfólk sitt við íþróttaiðkun og telst félagsaðild í GKG vera styrkhæf.

77 ára og eldri klúbbmeðlimir sem hafa verið í GKG í 10 ár eða lengur geta sótt um að greiða lægra félagsgjald (kr. 92.500 fyrir árið 2026). Vinsamlegast hafið samband við ulfar@gkg.is til þess að sækja um það.

Úrsögn
Óski klúbbmeðlimur eftir því að segja sig úr klúbbnum þarf sú tilkynning að hafa borist í síðasta lagi 31. desember hvers árs.

Innheimta félagsgjalda
Innheimta félagsgjalda hefst í desember hvert ár og er eindagi 3. janúar. Hægt er að ráðstafa greiðslum og hefja greiðslur með fyrsta eindaga 3. febrúar.

Endurgreiðsla félagsgjalda
Klúbbmeðlimir eiga ekki rétt á endurgreiðslu félagsgjalda segi þeir sig úr klúbbnum eftir að greiðsla félagsgjalda er hafin.

Geti klúbbmeðlimur einhverra hluta vegna ekki spilað golf vegna veikinda eða slyss, þá þarf að tilkynna það áður en golftímabil hefst.

Ef einstaklingur slasast eða veikist eftir að golftímabilið hefst endurgreiðir GKG með eftirfarandi hætti:

  • Ef tilkynning berst í
    • maí – 80%​
    • júní – 60%
    • júlí – 40%
    • ágúst – 20%
  • Ef tilkynning berst eftir 15. ágúst er engin endurgreiðsla.

Leggja þarf fram læknisvottorð til að eiga möguleika á endurgreiðslu.

Reglur varðandi biðlista

Almenna reglan er „fyrstur kemur, fyrstur fær“.

Undantekningar:

  • Meðlimir fá forgang sem taka sér ársfrí t.d. vegna veikinda, meiðsla, flutninga.
    • Óski meðlimur eftir að framlengja fríið þá þurfi að greiða sem nemur 20% árgjalds til að halda forgangi.
  • Aðilar sem voru áður félagar í 5 ár samfleytt eða lengur fá eins ár bið (komast ekki strax inn heldur árið á eftir). Dæmi: sótt er um jan-des 2026, kemst inn 2028. *
  • Makar fá eins ár bið (komast ekki strax inn heldur árið á eftir). *
  • Foreldrar iðkenda í barna- og unglingastarfi fá eins ár bið (komast ekki strax inn heldur árið á eftir).*

 

* Að því gefnu að laus pláss séu í klúbbinn.