FJ helgarmótaröð GKG
Janúar – Mars 2025

Staðan í heildarkeppninni
Úrslit í öllum mótum
Hringur 1 24.-26. jan Cabot Cliffs
Hringur 2 31.-2. feb Bulls Bridge
Hringur 4 14.-16. feb Vattanac golf East course
Hringur 5 21.-23. feb Kissing Tree
Hringur 6 28.-2. mars Fields Ranch East at PGA Frisco
Hringur 7 7.-9. mars Bear Dance
Hringur 8 14.-16. mars Old Works Golf Club
Hringur 9 21.-23. mars Cabot Links
Helgarmótaröð GKG í boði FootJoy
Mótaröðin er innanfélagsmótaröð.
Ekkert gjald er fyrir þátttöku í mótinu, þú einfaldlega bókar og greiðir fyrir notkun á herminum. Aðeins er hægt að leika í hermum GKG í Íþróttamiðstöðinni og Kórnum.
Hægt verður að taka þátt á föstudegi til sunnudags og fer fyrsta mótið fram helgina 24.-26. janúar og það seinasta helgina 21.-23. mars.
Alls verða 9 mót og gilda 4 bestu mótin í heildarkeppninni.
Glæsileg verðlaun í boði frá FJ (FootJoy) fyrir 3 efstu sætin í karla- og kvennaflokki í heildarkeppninni.
Einnig verða veitt verðlaun fyrir besta skor í höggleik án forgjafar karla og kvenna.
Nándarverðlaun á tveimur par holum í hverju móti.
Ekki er nauðsynlegt að skrá sig, mótið verður til taks í TrackMan Tournaments flipanum sem valinn er í herminum sem leikið er í.
Keppnisskilmálar
Leikin er punktakeppni með TrackMan forgjöf. Nauðsynlegt er að hafa löglega Trackman forgjöf. Hún er fengin með því að hafa lágmark þrjá hringi skráða til forgjafar í Trackman kerfinu.
Keppt er í karla- og kvennaflokki.
Leiknar eru 9 holur í hverri umferð (seinni níu á hverjum velli).
Fjórir bestu hringirnir telja í heildarkeppninni. Ef kylfingar eru jafnir þá gildir 5. hringurinn, svo 6. hringurinn og svo koll af kolli þangað til úrslit nást. Ef það nægir ekki ræður hlutkesti.
Stillingar:
Flatir: Medium
Flatir stimp: 9 fet
Holustaðsetningar: Medium
Vindur: Calm
Pútt: Auto Fixed (1 pútt <3 metra, 2 pútt 3,1-20 metra, 3 pútt >20 metra)
Mulligans:
Mulligans eru leyfðir ef um tæknilega villu er að ræða, t.d. “draugahögg”. Það mun sjást á skorkortinu ef mulligan er notaður og þarf leikmaður að senda skriflega skýringu til ulfar@gkg.is.
Heildarverðlaun í karla- og kvennaflokki:
- verðlaun: FJ Traditions golfhermaskór án takka og 5 skipta klippikort í golfherma GKG
- verðlaun: FJ belti og FJ sokkar og 5 skipta klippikort í golfherma GKG
- verðlaun: FJ skópoki og FJ sokkar og 5 skipta klippikort í golfherma GKG
Heildarverðlaun fyrir besta skor í höggleik án forgjafar karla og kvenna:
FJ Flex golfhermaskór án takka
Nándarverðlaun á tveimur brautum í hverju móti:
60 mínútur í Trackman hermi GKG
Við flökkum um heiminn og spilum glæsilega velli!

