Við erum með þjónustuna fyrir þig

Við bjóðum fyrirtækjum upp á að koma til okkar og halda vinnudaga sem hægt er að brjóta upp með útiveru eða ýmis konar afþreyingu í Íþróttamiðstöðinni þar sem við höfum að geyma 16 herma, 18 holu púttflöt og 9 holu vippflöt.

Fundarherbergin okkar taka allt að 30 manns og tekur stóri salurinn okkar 170 manns í sæti. Það er í boði að bóka hvort tveggja og er þá hægt að hafa vinnudaginn fjölbreyttan og einbeittan í góðu umhverfi.

FYRIRTÆKJAMÓT

HÓPEFLI

RÁÐSTEFNUR

FYRIRTÆKJAMÓT

Hermamót

Við getum sett upp stakt hermamót eða jafnvel mótaseríu fyrir fyrirtækið þitt.

 

Þið getið boðið starfsfólki ykkar eða ykkar stærstu viðskiptavinum og valið úr þeim fjölda golfvalla sem Trackman býður upp á.

 

Að sjálfsögðu er Mulligan á sínum stað til þess að næra ykkur og vökva og við sjáum um allt utanumhald sem varðar uppgjör mótsins.

VIP mót

Við munum aðstoða ykkar fyrirtæki við að setja upp glæsilega umgjörð utan um “VIP-mót” á Leirdalsvelli. 

Hægt er að byrja mótið með stuttum fyrirlestri um t.d. leikskipulag í fundarherbergjum GKG og skála fyrir góðu móti.

 

Við sjáum um að setja mótið upp í golfbox, afhenda ykkur forprentuð skorkort, ræsa ykkur út, gerum svo upp mótið eftir hringinn og þið getið sjálf fylgst með stöðunni frá upphafi til enda í gegnum “skor á rauntíma” eða live scoring. 

 

Mulligan er á sínum stað þar sem þið getið boðið upp á veitingar fyrir og/eða eftir mót.

 

Í VIP móti getur fjöldi holla verið frá þremur og upp í fimm.

Shotgun mót

Í þessum mótum er ræst út af öllum teigum vallarins samtímis, og því allur völlurinn undirlagður í mótið.

 

Þátttakendur geta verið um 100 talsins í þessum mótum og því um að gera að hvetja alla til þátttöku!

 

Við sjáum að sjálfsögðu um allt utanhald – rástíma, skorkort, uppgjör og svo framvegis.

 

Komdu og haltu þitt mót hjá okkur!

HÓPEFLI

Hópefli

Við bjóðum upp á frábæra aðstöðu til þess að halda hópeflisdaga. Hér er hægt að brjóta daginn upp þegar fundarhöld hafa staðið yfir of lengi með því að fara í íþróttamiðstöðina á neðri hæðinni okkar þar sem við búum yfir 16 golfhermum, 18 holu púttflöt sem og 9 holu vippflöt.

Sé þess óskað geta PGA kennararnir okkar sett upp alls konar leiki og / eða keppnir. Golfgeta er ekki skylda!

Það er um að gera að bjóða svo upp á góðan mat til þess að fullkomna daginn og fá sem mest út úr starfsfólkinu ykkar!

Senda fyrirspurn

RÁÐSTEFNUR

Ráðstefnur

Ef þú og þitt fyrirtæki eruð í ráðstefnuhugleiðingum þá býður salurinn í GKG upp á ýmsa möguleika. Þar sem hann rúmar 170 manns í sæti er nóg pláss fyrir flest fyrirtæki og tilvalið að nýta fundarherbergin að auki ef brjóta á upp ráðstefnuna og minnka hópana.

 

Það er skjávarpi til staðar og auk þess sjónvörp í salnum þar sem hægt er að varpa öllum upplýsingum upp þannig að allir sjái. Einnig er gott hljóðkerfi í húsinu svo upplýsingar ættu ekki að fara framhjá neinum!

 

Til þess að fullkomna upplifunina er að sjálfsögðu hægt að bjóða upp á góðgæti hjá matreiðslumeistaranum okkar í Mulligan og góðar veigar með.

Senda fyrirspurn

BÓKUN FYRIRTÆKJAÞJÓNUSTU

Sendu okkur fyrirspurn hér í gegnum netið eða sendu tölvupóst á agnar@gkg.is.

Við munum hafa samband við ykkur um leið og tækifæri gefst.

Athugaðu að þú getur hakað við fleiri en eina þjónustu og tilgreint nánar í athugasemdum ef eitthvað er.

Þjónusta

BÓKA MÓT

Sendu okkur fyrirspurn hér í gegnum netið eða sendu tölvupóst á agnar@gkg.is.

Við munum hafa samband við ykkur um leið og tækifæri gefst.

Viltu að mótið verði sett upp í gegnum golfbox? *
Hvaða fyrirkomulag viltu hafa á mótinu?
Viltu hafa hámarks leikforgjöf? *