TrackMan Performance Studio – TPS

TPS er hugbúnaður sem er sérhannaður fyrir þá sem vilja ná betri tökum á sveiflunni og boltafluginu.

Við höfum útbúið nokkur myndbönd sem sýna það helsta sem þú þarft til að koma þér af stað og æfa þig með markvissum og skemmtilegum hætti:

Skoðaðu myndbandið hér til að sjá hvernig á að opna TPS forritið og skrá sig inn.

Skoðaðu næsta myndband til að sjá hvernig við æfum með TPS, hvaða mæligildi þú átt að leggja áherslu á, a.m.k. í upphafi, og hvernig þú getur búið til og sent sjálfum þér skýrslu eftir æfinguna. 

Einnig er hægt að æfa í Trackman golfhermi líkt og við værum á golfvelli. Hægt er að velja t.d. innáhögg á fallega par 3 braut, eða æfa krefjandi teighögg á frægri og skemmtilegri par 4 eða par 5 braut. Þá er einfaldlega valið “On course” í æfingaforritinu (Practice), valinn völlur, braut og staðsetning höggsins sem á að æfa.

Ennfremur, þá er hægt að gera eftirfandi hluti í TPS:

Rauntíma greining á höggum – Hvert högg er mælt og lykiltölur eru birtar. Hægt er að velja með hvaða hætti hugbúnaðurinn birtir upplýsingarnar og þá bæði með grafískum hætti sem og tölfræðilegum. Hægt er að geyma allar upplýsingarnar undir eigin notendanafni.

Sjá myndband.

Hámörkun sveiflunnar – Hægt er að skoða hvert högg með tilliti til hámörkunar. Trackman sýnir 5 breytur á súluriti (Optimizer) sem TrackMan er búið að greina. Með þeim hætti er einfalt að sjá hvaða þætti golfsveiflunnar þarf að laga til að hámarka lengd í höggunum.

Sjá myndband.

Sérsniðnar æfingar – Golfkennari (eða þeir sem eru lengra komnir) getur aðstoðað nemanda við að setja upp sérsniðnar æfingar sem henta því sem viðkomandi er að vinna í. Með þeim hætti er hægt að setja upp æfingaáætlun sem leggur áherslur á fleygjárn, dræverinn eða ákveðnar lengdir.

Sjá myndband

Samanburðaræfingar – Í samanburðaræfingum (Trackman Combine Test) telur hvert högg. Byrjað er á stuttum höggum og gefur Trackman einkunn fyrir hvert högg og smám saman lengjast höggin og endað er með driver. Með þeim hætti breytist einbeitingin hjá þeim sem slær þar sem hvert högg telur. Hægt er að halda utan um þróunina hjá sér sem og bera saman við þá bestu í heiminum.

Sjá myndband