Betra golf allt árið

Golfakademía GKG er þjónusta við alla kylfinga. Markmiðið er að gera leikinn aðgengileganárangursríkan og skemmtilegan.

Fjögurra skipta námskeið hjá Ara

Ari Magnússon PGA kennari hjá GKG býður upp á fjögurra skipta námskeið þar sem farið verður í hlutina sem skipta svo miklu máli í golfi, frá stutta til langa spilsins. 

Hámark fjórir í hóp.

Tímarnir verða settir svona upp:

Fyrsti tími.
Grunnatriðin(grip og staða), sláttur með þægilegu járni t.d.8 járn eða 9 járn.

Annar tími:
Tími með Brautartré/Driver, fer í það að nota grunnatriðin sem við höfum lært með járnunum.

Þriðji tími:
Í pútt tímanum þá tökum við fyrir pútt gripið og stöðuna, ég legg mikla áherslu á það að mínir nemendur læri að nota taktstjórnun. Það eru til allavega leiðir til þess að pútta, en ef takturinn er ekki í lagi, þá mun okkur ekki ganga eins vel.

Fjórði tími:
Þegar við tökum vippin fyrir þá förum við í gegnum þá tækni sem við notum þar, hún er töluvert öðruvísi en sú sem við notum þegar við sláum. Að ná réttri tækni í vippunum mun auðvelda okkur lífið á golfvellinum.

Dagsetningar:

18.-20.-25.-27. júní

kl 18-19

kl 19-20

Í kringum allt lærum við hvernig við getum búið til æfingaplan í þessum þáttum til þess að mæla árangur.

Verð kr. 24.000

Skráning: arimaggpga@gmail.com