Sigurvegarar haustið 2025!

Við þökkum öllum keppendum kærlega fyrir þátttökuna.

Alls tóku 42 konur og 105 karlar þátt í PING helgarmótaröðinni í ár.

Kvennaflokkur – punktakeppni:

  1. sæti: Berglind Jónasdóttir 79 punktar – Gjafabréf upp á Ping fleygjárn að eigin vali
  2. sæti: Ragga Steph. 77 punktar – Ping regncover
  3. sæti: Ingibjörg 63 72 punktar – Ping kuldalúffur

Kvennaflokkur – höggleikur án forgjafar:

  1. sæti: María Elísdóttir 157 högg – Ping bakpoki

Karlaflokkur – punktakeppni:

  1. sæti:  Bjössi Hreiðars 78 punktar – Gjafabréf upp á Ping fleygjárn að eigin vali
  2. sæti:  Darri2012 73 punktar – Ping regncover
  3. sæti: Hjalti Elíasson 73 punktar – Ping kuldalúffur

Darri var með betri 5. hring en Hjalti og hlýtur því 2. sætið.

Karlaflokkur – höggleikur án forgjafar:

    1. sæti:  Guðjón Frans Halldórsson 127 högg – Ping bakpoki

Við óskum verðlaunahöfum til hamingju með árangurinn. Hægt er að nálgast verðlaunin í Golfverslun GKG á opnunartíma.

 

Frá helginni 24.-26. október til 12.-14. desember

Hér vinstra megin munu birtast upplýsingar um úrslit í hverju móti sem og stöðuna í heildarkeppninni.

Allar upplýsingar um mótaröðina má sjá hér fyrir neðan.

 

Við kynnum TrackMan helgarmótaröð GKG í boði Ping
Mótaröðin er innanfélagsmótaröð.

Ekkert gjald er fyrir þátttöku í mótinu, þú einfaldlega bókar og greiðir fyrir notkun á herminum. Aðeins er hægt að leika í hermum GKG í Íþróttamiðstöðinni og Kórnum.

Hægt verður að taka þátt á föstudegi til sunnudags og fer fyrsta mótið fram helgina 24.-26. okt. og það seinasta helgina 12.-14. des.

Alls verða 8 mót og gilda 4 bestu mótin í heildarkeppninni. 

Glæsileg verðlaun í boði frá Ping fyrir 3 efstu sætin í karla- og kvennaflokki í heildarkeppninni:

Nándarverðlaun á tveimur brautum í hverju móti: 60 mínútur í hermi hjá GKG

 

Ekki er nauðsynlegt að skrá sig.

Mótið verður til taks í TrackMan Tournaments flipanum sem valinn er í herminum sem leikið er í.

Keppnisskilmálar 

Leikin er punktakeppni með TrackMan forgjöf. Nauðsynlegt er að hafa löglega Trackman forgjöf. Hún er fengin með því að hafa lágmark þrjá hringi skráða til forgjafar í Trackman kerfinu, án þess að taka mulligans.

Keppt er í karla- og kvennaflokki. 

Leiknar eru 9 holur í hverri umferð (seinni níu á hverjum velli). 

Fjórir bestu hringirnir telja í heildarkeppninni. Ef kylfingar eru jafnir þá gildir 5. hringurinn, svo 6. hringurinn og svo koll af kolli þangað til úrslit nást. Ef það nægir ekki ræður hlutkesti.

Stillingar: 
Flatir: Medium
Flatir stimp: 9 fet
Holustaðsetningar: Medium
Vindur: Calm
Pútt: Auto Fixed (1 pútt <3 metra, 2 pútt 3,1-20 metra, 3 pútt >20 metra)

Mulligans:
Mulligans eru leyfðir í mótinu ef um tæknilega villu er að ræða, t.d. “draugahögg”. Það mun sjást á skorkortinu ef mulligan er notaður og þarf leikmaður að senda skriflega skýringu til ulfar@gkg.is.

Veitt verða glæsileg verðlaun frá PING fyrir efstu þrjú sætin í heildarkeppninni í karla- og kvennaflokki.

Einnig verða veitt verðlaun fyrir efsta sætið í höggleik án forgjafar í kvenna- og karlaflokki.

Nándarverðlaun verða á tveimur par þrjú brautum í hverju móti.

Vellirnir

TrackMan býður upp á yfir 400 glæsilega golfvelli og því úr miklu úrvali að velja velli til leika á. 

Vellirnir í mótaröðinni eru mjög fjölbreyttir en allir þó viðráðanlegir sem kylfingar ráða við og geta notið þess að leika á.