Par 4 Fgj. 3

Fyrsta holan á Leirdalsvelli er bein og breið par 4 hola.
Upphafshöggið er slegið niður á brautina og er gott fyrir þá höggstyttri að reyna að koma sér að brekkunni og láta boltann rúlla niður.
Vinstra megin eru þrjár sandglompur og hægra megin mói, svo hér skiptir máli að vera beinn í fyrsta höggi hringsins. Lendingarsvæðið er þó stærra en útsýnið af fyrsta teig gefur til kynna.
Flötin er L-laga og getur innkoman á hana verið ansi strembin ef flaggið er staðsett aftarlega, vinstra megin á flötinni.
Hólar eru í kringum flötina og sandglompa hægra megin sem ber að forðast.
Par 3 Fgj. 13

Önnur hola er strembin, miðlungslöng par 3 hola.
Flötin er stór og mikil og hallar öll að kylfingnum. Undanfarin sumur hefur flötin verið með þeim allra hörðustu og hröðustu á vellinum og því væri skynsamlegt fyrir kylfinga að reyna að koma boltanum fyrir neðan pinnann, svo auðveldara pútt upp í móti bíði þeirra þegar þeir koma á flötina.
Hér skiptir miklu að hitta flötina, því hún er vel varin af stórri glompu og skógi vinstra megin og glompu, þykku grasi og vallarmörkum hægra megin.
Par 5 Fgj. 9

Þriðja holan á vellinum er fremur löng par 5 hola en þeir allra högglengstu geta þó náð inn á flöt í tveimur höggum.
Upphafshöggið er einfalt, brautin bein og breið og ekki mikið um hindranir ef kylfingar halda boltanum í réttri stefnu.
Annað höggið er þó flóknara og býður upp á ýmsa möguleika. Kylfingar standa frammi fyrir mikilli brekku og geta valið að leggja boltann á stallinn fyrir neðan flötina eða reynt að koma honum upp á efri stallinn, þar sem flötin bíður.
Mikið er um hindranir í brekkunni, þykkur kargi og móar hægra megin en glompa og lúpínur vinstra megin.
Flötin er fremur lítil, en hefur þó verið stækkuð töluvert á undanförnum árum, og getur höggið inn á hana verið erfitt í miklum vindi. Hættulegt er að fara of langt í innáhögginu því þar er mikill hóll og á bak við hann móar.
Par 3 Fgj. 17

Nú yfirgefum við Garðabæ um stund og heimsækjum Kópavog.
Fjórða holan er fyrsta holan í Leirdalnum sjálfum og tekur dalurinn vel á móti kylfingum með þessari vinalegu par 3 holu.
Holan er stutt og einföld. Flötin er stór og þægilegt fyrir kylfinga að hitta hana frá teignum. Mistakist það getur holan verið fljót að refsa því vinstra megin við flötina er stutt í vallarmörk.
Hægra megin eru tvær glompur og fyrir aftan er hóll sem óþægilegt er að slá úr.
Par 4 Fgj. 1

Fimmta holan er par 4 hola sem getur reynst erfið í spilun, sérstaklega í mótvindi.
Upphafshöggið þarf að vera nákvæmt ætli kylfingar sér á brautina því hún er varin af karga og trjám hægra megin en miklum sandglompum vinstra megin. Þá þurfa þeir högglöngu að hafa áhyggjur af tjörninni sem er hægra megin við brautina.
Flötin er stór og myndarleg og er myndar með hlíðunum sem umlykja hana einhvers konar skál. Nákvæmni er þörf í því nokkrar glompur verja hana fyrir of stuttum höggum.
Par 4 Fgj. 7

Sjötta hola vallarins er erfið og krefst nákvæmni af kylfingum. Upphafshöggið er eitt það erfiðasta á hringnum, blint högg upp í móti á lítið lendingarsvæði.
Hér taka margir kylfingar 3-tré eða járn fyrir nákvæmni og reyna þannig að komast hjá því lenda í stóru sandglompunni vinstra megin og tjörninni eða karganum hægra megin.
Flötin er stór, á eins konar stalli umkringd sandglompum. Vandasamt getur verið að stöðva boltan á flötinni sökum þess hvernig hún hallar og af því að undanfarin sumur hefur hún verið mjög hörð.
Par 5 Fgj. 11

Sjöunda holan er lengsta hola vallarins, rétt rúmlega hálfur kílómetri af hvítum teigum.
Brautin er þröng og því skiptir nákvæmni máli, ætli kylfingar sér að ná góðu skori á þessari holu. Í upphafshögginu ber að varast glompuna hægra megin sem gleypir furðu marga bolta.
Annað höggið er sennilega erfiðast, en með góðu höggi geta kylfingar skilað sér langleiðina inn á grín. Miklu máli skiptir að fara ekki mikið út fyrir brautina því stutt er í vandamálin, glompur, vatn og mikið gras.
Flötin er ein sú stærsta á vellinum og liggur í laut, umkringd gróðri og sandglompum. Innáhöggið er því vandasamt en ólíkt flötinni á 6. holu tekur þessi ágætlega við geta góðir kylfingar því “barið” boltann inn að pinna áhyggjulausir.
Par 4 Fgj. 5

Áttunda holan er skemmtileg par 4 hola sem liggur í hundslöpp til vinstri.
Í upphafshögginu má alls ekki slá til vinstri því þá er hætta á að hann lendi utan vallarmarka.
Annað höggið er krefjandi, oftast úr hliðarlegu og slegið upp í móti. Sandglompur eru fyrir framan og hægra megin við flötina sem er myndarleg á tveimur stöllum.
Par 3 Fgj. 15

Níunda holan er erfið par 3 hola.
Teigurinn er töluvert fyrir ofan flötina sem er löng og mjó, þannig að hér skiptir miklu fyrir kylfinga að vera nákvæmir.
Sé höggið of stutt eða til hægri endar boltinn í móa sem erfitt getur verið að bjarga sér frá. Upphafshöggið getur verið mjög vandasamt því oft er vindasamt á þessum hluta vallarins.
Flötin hallar öll að kylfingum og leka flestir boltar af henni til hliðar sé höggið ekki nákvæmt. Erfiðar sandglompur eru hægra megin við flötina og erfitt getur verið að koma boltanum nálægt pinna úr þeim.
Kylfingar mega alls ekki vera of langir og slá yfir flötina því nánast ómögulegt er að stöðva boltann á flötinni þegar vippað er upp á flötina aftan frá.
Par 4 Fgj. 4

Tíunda holan er ein erfiðasta hola vallarins, löng par 4 hola sem hreinlega ögrar kylfingum.
Teighöggið er afar mikilvægt, því öll högg sem ekki enda á brautinni bjóða upp á vandræði fyrir innáhöggið. Meðfram brautinni vinstra megin er kargi og nokkrar sandglompur sem gleypa í sig bolta. Enn lengra til vinstri er mói sem er afar erfiður viðureignar.
Ekki geta kylfingar þó miðað hægra megin við brautina því þar tekur við kargi og nokkur tré. Ennfremur er innkoman á flötina þaðan nánast ómöguleg. Flötin er stór, L-laga og hallar öll að kylfingum. Innáhöggið er erfitt fyrir kylfinga og krefst mikillar nákvæmni, því öll högg sem ekki hitta flötina annaðhvort enda í glompunni hægra megin eða leka niður af stallinum sem flötin er á. Getur reynst vandasamt að vippa þaðan.
Par 3 Fgj. 14

Eftir erfiða 10. holuna bíður vinaleg 11. holan eftir kylfingum.
Hér er um stutta par 3 holu að ræða. Flötin er stór og myndarleg og ekki miklum vandkvæðum bundið að hitta hana.
Ef það mistekst þá er hún varin af sandglompum sem geta reynst kylfingum skeinuhættar, auk þess sem hún er á myndarlegum stalli sem erfitt getur verið að vippa upp á mistakist upphafshöggið.
Par 5 Fgj. 10

Eftir að kylfingar hafa kastað mæðinni í áningarhúsinu við 12. teig bíður þeirra síðasta holan í Leirdalnum sjálfum, fremur stutt par 5 hola.
Upphafshöggið er fremur einfalt, brautin liggur bein og breið og gott getur verið að vera hægra megin á henni til að auðvelda innkomu á flötina seinna meir. Högglangir kylfingar geta auðveldlega með löngu og rétt staðsettu teighöggi komist inn á flötina í tveimur höggum.
Stranglega er bannað að vera vinstra megin við brautina efitr upphafshöggið því þar er glompa, kargi og vallarmörk.
Flötin liggur til vinstri við brautina og getur reynst erfitt að hitta hana ef ekki er vel stillt upp fyrir þriðja högg. Vinstra megin við hana er mikill skógur og hægra megin tvær stórar glompur.
Par 3 Fgj. 12

Á þrettándu holunni erum við aftur komin í land Garðabæjar og er þetta ein af “gömlu” holunum á Vífilsstaðavellinum.
Þetta er nokkuð strembin par 3 hola sem krefst nákvæmni af kylfingum.
Flötin liggur töluvert fyrir ofan teiginn og snýr þannig að kylfingum að erfitt getur reynst að ná inn á pinna. Fjórar sandglompur, þykkur kargi og hólar og hæðir bíða boltum sem villast af leið á þessari erfiðu par 3 holu.
Par 5 Fgj. 18

Fjórtánda holan er stutt par 5 hola og af mörgum talin ein sú auðveldasta á vellinum.
Kylfingar slá upphafshöggið töluvert niður í móti. Hér skal varast að slá of mikið til hægri en þar eru vallarmörkin. Ef höggið fer of mikið til vinstri þá lengist næsta högg til muna.
Takist kylfingum hins vegar vel upp með upphafshöggið þá er leiðin bein og breið að stórri flötinni. Hér geta margir náð inn á flöt, eða að minnsta kosti mjög nálægt flötinni í tveimur höggum.
Flötin er stór og myndarleg en hefur verið hörð og þar af leiðandi hröð undanfarin ár. Er því rétt fyrir kylfinga að gæta sín þegar þeir reyna við örninn eða fuglinn.
Par 4 Fgj. 2

Fimmtánda holan þykir með þeim mest krefjandi á vellinum því upphafshöggið er sennilega eitt það erfiðara á vellinum fyrir meðalkylfinginn, en langt er frá teig að braut.
Höggið má ekki höggið víkja mikið til hægri eða vinstri því þar bíða vítasvæði hægra megin og vallarmörk vinstra megin.
Þegar á brautina er komið bíður frekar einfalt innáhögg á myndarlega flöt sem er vel varin af fjórum stórum glompum að framan og fyrir aftan hana eru tvær erfiðar glompur.
Þær eru þó ekki eins mikið í leik og ætla mætti, en kylfingar ættu frekar að halda sig framan við holuna því niður í móti pútt eru mjög sleip.
Par 5 Fgj. 8

Sextánda holan er ein af skemmtilegri holum vallarins, krefjandi og löng par 5 hola sem getur gefið vel af sér en er fljót að refsa fyrir mistök.
Teigurinn liggur mun hærra en brautin og er lykilatriði fyrir kylfinga að hitta hana í upphafshögginu. Vinstra megin við brautina eru hólar með mjög þykkum karga sem afar erfitt getur verið að slá upp úr. Vallarmörk eru ef slegið er yfir á þriðju brautina. Leki upphafshöggið of mikið til hægri bíður boltans vítasvæði.
Takist upphafshöggið vel bíður kylfinga strembið annað högg. Flestir ná yfir fremur stór móasvæði sem sker miðja brautina. Á bak við það er grænt svæði sem kylfingar verða að hitta á ætli þeir sér að eiga möguleika á góðu skori á þessari holu. Leiti annað höggið til vinstri bíður erfitt innáhögg úr hlíðinni sem er fyrir neðan teiginn á þriðju holu. Sveigi boltinn til hægri er mikil hætta á að hann lendi í vatni sem liggur hægra megin við brautina.
Innáhöggið er yfirleitt fremur einfalt, enda er flötin stór og auðvelt að hitta hana. Hægra megin við flötina er sandglompa sem á ekki að valda kylfingum of miklu hugarangri.
Par 3 Fgj. 16

Sautjánda holan er stutt par 3 hola sem er þó sýnd veiði en ekki gefin fyrir kylfinga.
Tvær myndarlegar sandglompur liggja fyrir framan meðalstóra flötina og verja hana fyrir of stuttum upphafshöggum. Slái kylfingar of langt endar boltinn í hól sem er þakinn þykkum karga.
Erfitt getur verið að vippa út úr honum og stöðva boltann á flötinni, sem þá hallar að mestu leyti frá kylfingnum.
Par 4 Fgj. 6

Lokahola vallarins er afar áhugaverð og skemmtileg lokahola.
Hún er meðallöng par 4 hola sem liggur öll upp í móti, í hundslöpp til vinstri. Upphafshöggið krefst töluverðar nákvæmni af kylfingum. Lendi boltinn utan brautar hægra megin bíður þykkur kargi kylfinga, auk þess sem að innáhöggið verður töluvert lengra. Séu kylfingar of vinstrisinnaðir getur það þýtt mikil vandamál.
Stór glompa er vinstra megin við brautina og vinstra megin við hana eru móar, göngustígur og tré sem þvælast fyrir kylfingum.
Besta upphafshögg hér skilar boltanum aðeins vinstra megin á brautina, við hliðina á eða fram yfir stóru sandglompuna.
Stór flöt með miklu landslagi bíður síðan kylfinga upp við skálann. Innáhöggið getur verið flókið og góð lengdarstjórnun er mikilvæg. Ágætt er að muna að taka númeri lægra járn í innáhögg því höggið er upp í móti. Flötin er nokkuð slétt vinstra megin en glompa tekur við boltum sem fara of langt til vinstri. Flötin býður upp á erfiðar holustaðsetningar hægra megin þar sem landslagið er mikið. Glompur verja flötina fyrir framan. Alvöru lokahola þar sem par er virkilega gott skor.
Skorkort Leirdalsvallar