Þó svo að það sé sumar allt árið hjá GKG þá eru jólin í miklu uppáhaldi hjá okkur og nú smellir hann Vignir í skötuveislu fyrir okkur um hádegið á Þorláksmessu.

Það verður kæst skata af vestfirskum uppruna ásamt eðalsaltfiski rúgbrauði og öðru sem tilheyrir alvöru skötuveislu.

Skötuveislan er ekki bara fyrir GKG-inga, allir eru velkomnir og geta fyrirtæki pantað fyrir hópa og borðað prívat í fundarherbergjunum. Við munum engu að síður passa upp á að hin margrómaða GKG stemning njóti sín til fullnustu.

Verðið er eingöngu 3.500,- kr. á mann.

Borðapantanir á vignir@gkg.is eða í síma 824 2046