Betra golf allt árið

Golfakademía GKG er þjónusta við alla kylfinga. Markmiðið er að gera leikinn aðgengileganárangursríkan og skemmtilegan.

Golfnámskeið í október 2025, haldið í Kórnum. 
 
Guðjón G. Daníelsson PGA golfkennari verður með 4 * 60 mín. námskeið í október á eftirfarandi dags og tímasetningum í Kórnum:
 
mánudaginn 6.okt. kl. 18:00 – 19:00 og 19:00 – 20:00
fimmtudaginn 9.okt. kl.  18:00 – 19:00 og 19:00 – 20:00
mánudaginn  13.okt. kl. 18:00 – 19:00 og 19:00 – 20:00
fimmtudaginn 16.okt. kl. 18:00 – 19:00 og 19:00 – 20:00
 

Þátttakendur fá góðar hugmyndir sem hjálpa til við að æfa sig milli tíma og eftir námskeið en notast verður við Trackman í tvö skipti af fjórum á námskeiðinu.

Farið verður yfir helstu tölur og greiningar sem Trackman býður upp á.

Námskeiðið hentar breiðum hópi kylfinga, allt frá þeim sem eru ný byrjaðir, sem og þeim sem eru lengra komnir, og vilja bæta sinn leik. 

Þetta er tilvalin leið til að skoða grunnatriðin eins pútt, vipp og hvernig gott getur verið að bera sig að við stutta spilið ásamt því að brautarhögg og teighöggin eru tekin fyrir.

Verð: 25.000 kr. og er æfingaraðstaðan með boltum og hermum innifalinn.

Skráning á: gudjond@gmail.com