Betra golf allt árið

Golfakademía GKG er þjónusta við alla kylfinga. Markmiðið er að gera leikinn aðgengileganárangursríkan og skemmtilegan.

Skráning í kennslu hjá Hlöðveri fer fram í Noona.

Skoðaðu lausa einkatíma og námskeið hér.

 

PGA menntaður golfkennari.

Kennsla með TrackMan

Einkakennsla, pör og hópkennsla, skipulag golfferða og fararstjórn.

Hópkennsla fyrir fyrirtæki. Kylfumælingar

Stöðvaþjálfun Hlöðvers

 
Kennsla fer fram kl. 10:30  til 11:30  (60 mín) í Kórnum.
Byrjum föstudaginn 9 jan til 28 febrúar.
Við höfum allan salinn fyrir okkur, þ.e. herma og púttsvæðin.
 
Námskeiðið er sett upp sem stöðvakennsla. Settar verða upp 12 stöðvar sem mæla getu kylfings allt frá púttum og til teighögga ásamt æfingum fyrir styrk og liðleika.
Allar æfingar og skor á hverri stöð er hægt að skrá, þannig að hver og einn sér fljótlega hvar styrkleikar og veikleikar eru á hverju sviði.
 
Þessi námskeið hafa verið með svipuðu sniði undanfarin ár, fullsetin og mikil ánægja.
 
Farið verður yfir öll helstu atriði golfsins, pútt, vipp, járn, brautarhögg, teighögg og driver
Æfum og skoðum kylfuhraða og önnur tækniatriði og próf sem TrackMan býður upp á. Þegar líður á námskeiðið kíkjum við á spilkennslu sem varðar ákvarðanatöku og val á kylfum við golfleikinn.
Setjum inn nokkrar styrktaræfingar sem hjálpa til við sveifluna.
 
Einnig munum við skoða tæki og tól til að hjálpa okkur við að auka kylfuhraða eins og The Stack System, Rypstik Speed Trainer, Orange Whip o.fl.
Skoðum líka æfingar með Resistance Band og Rotex Motion sem eru frábær tæki til að auka styrk og liðleika.  
 
Allir fá eyðublað til að skrá árangur/skor á hverri stöð/kylfu. Með tímanum sést hvað þarf sérstaklega að bæta og laga og við bætum við æfingum sem henta hverjum og einum.
Það er æskilegt að vera kominn með TrackMan appið og nota það við æfingar í áframhaldi. TrackMan geymir allar æfingar og spil og gott að skoða það og hvað þarf að laga.
 
 
Sama eyðublað/skráningarblað er líka notað sem skráningarblað fyrir aukaæfingar í framtíðinni og milli tíma.
 
Verði er stillt í hóf, hver tími er 60 mínútur og verð fyrir 8 skipti  kosta 35.000.
Vinsamlegast athugið að aðeins eru 12 pláss á þetta námskeið..
 
Skráning er á hlodverg@simnet.is
Nafn, kennitala og síma
 
Upplýsingar í 8611407 og hlodverg@simnet.is