Uglumótaröð GKG

 

Þar sem hvunndagskylfingar leika sitt besta golf,

mánudaga til fimmtudaga

Úrslit í öllum mótum

 

Mót 1: 3.-6. mars Liberty National

Mót 2: 10.-13. mars Adare Manor

Mót 3: 17.-20. mars PGA West Stadium

Mót 4: 24.-27. mars Royal County Down

Mót 5: 31.-3. apríl Valhalla Golf Club

 

Staðan í heildarkeppninni

 

Kvennaflokkur

Heildarstaðan 

Karlaflokkur

Heildarstaðan 

 

 

Mótaröðin er innanfélagsmótaröð

 

Ekkert gjald er fyrir þátttöku í mótinu, þú einfaldlega bókar og greiðir fyrir notkun á herminum. Aðeins er hægt að leika í hermum GKG í Íþróttamiðstöðinni og Kórnum.

Hægt verður að taka þátt á mánudegi til fimmtudags og fer fyrsta mótið fram 3.-6. mars og það seinasta 31.-3. apríl.

Um er að ræða 18 holu mót.

Alls verða 5 mót og gilda 4 bestu mótin í heildarkeppninni. 

Verðlaun eru veitt fyrir efsta sætið í hverju móti í karla- og kvennaflokki.

Einnig er veitt verðlaun fyrir besta heildarárangur karla og kvenna og gilda 4 bestu punktaskorin.

Nándarverðlaun á tveimur par holum í hverju móti.

Ekki er nauðsynlegt að skrá sig, mótið verður til taks í TrackMan Tournaments flipanum sem valinn er í herminum sem leikið er í.

Keppnisskilmálar 

Leikfyrirkomulag:

  • Leiknar eru 18 holur í punktakeppni með forgjöf.
  • Keppt er í karla- og kvennaflokki
  • Til að keppa til verðlauna þarf keppandi af hafa löglega forgjöf með lágmark þremur hringjum til forgjafar í Trackman.

 

Verðlaun í hverju móti:

  • 5×30 mínútna kort í GKG hermi eru veitt karli og konu með besta punktaskor í hverri umferð.
  • 60 mín kort í GKG hermi er veitt fyrir næst holu á tveimur par 3 holum í hverri umferð.

Verðlaun fyrir heildarkeppni þar sem 4 bestu skor telja:

  • 5×30 mínútna kort í GKG hermi eru veitt karli og konu með besta heildarskor í 4 umferðum.

 

Stillingar í hverri umferð:                                           

Greens: Medium                                           

Greens stimp: 9 fet                                       

Pins: Medium                                          

Wind: Calm                                       

Pútt: Auto Fixed (1 pútt <3 metra, 2 pútt 3,1-20 metra, 3 pútt >20 metra)        

 

Mulligans:

Mulligans eru leyfðir ef um tæknilega villu er að ræða, t.d. “draugahögg”. Það mun sjást á skorkortinu ef mulligan er notaður og þarf leikmaður að senda skriflega skýringu til ulfar@gkg.is.    

Lögleg Trackman forgjöf:

Leikin er punktakeppni með TrackMan forgjöf. Nauðsynlegt er að hafa löglega Trackman forgjöf. Hún er fengin með því að hafa lágmark þrjá hringi skráða til forgjafar í Trackman kerfinu.

Verðlaun í karla- og kvennaflokki í hverju móti:

5 skipta klippikort í golfherma GKG

Heildarverðlaun fyrir besta skor í höggleik án forgjafar karla og kvenna:

5 skipta klippikort í golfherma GKG

Nándarverðlaun á tveimur brautum í hverju móti:
60 mínútur í Trackman hermi GKG

 

 

Við spilum heimsfræga velli þar sem mörg stórmótin hafa verið haldin!