Staðan í heildarkeppninni

Fjórir bestu hringirnir telja.

Staðan í heildarkeppninni birtist hér að loknum 4 umferðum.

Kvennaflokkur
punktakeppni 

Karlaflokkur
punktakeppni

Kvennaflokkur
höggleikur

Karlaflokkur
höggleikur

 

Úrslit í öllum mótum

 

Nándarverðlaun

Hægt er að nálgast nándarverðlaun í Golfverslun GKG

 

Frá helginni 23.-25. október til 11.-13. desember

Hér vinstra megin munu birtast upplýsingar um úrslit í hverju móti sem og stöðuna í heildarkeppninni.

Allar upplýsingar um mótaröðina má sjá hér fyrir neðan.

 

Við kynnum TrackMan helgarmótaröð GKG í boði Ping
Mótaröðin er innanfélagsmótaröð.

Ekkert gjald er fyrir þátttöku í mótinu, þú einfaldlega bókar og greiðir fyrir notkun á herminum. Aðeins er hægt að leika í hermum GKG í Íþróttamiðstöðinni og Kórnum.

Hægt verður að taka þátt á föstudegi til sunnudags og fer fyrsta mótið fram helgina 23.-25. okt. og það seinasta helgina 11.-13. des.

Alls verða 8 mót og gilda 4 bestu mótin í heildarkeppninni. 

Glæsileg verðlaun í boði frá Ping fyrir 3 efstu sætin í karla- og kvennaflokki í heildarkeppninni:

Nándarverðlaun á tveimur brautum í hverju móti: 60 mínútur í hermi hjá GKG.

Keppendur geta valið teig eftir hentugleika og breytist þá vallarforgjöfin í samræmi við það.

 

Ekki er nauðsynlegt að skrá sig.

Mótið verður til taks í TrackMan Tournaments flipanum sem valinn er í herminum sem leikið er í.

Keppnisskilmálar 

Leikin er punktakeppni með TrackMan forgjöf. Nauðsynlegt er að hafa löglega Trackman forgjöf. Hún er fengin með því að hafa lágmark fjóra hringi skráða til forgjafar í Trackman kerfinu, án þess að taka mulligans.

Keppt er í karla- og kvennaflokki. 

Leiknar eru 9 holur í hverri umferð (seinni níu á hverjum velli). 

Fjórir bestu hringirnir telja í heildarkeppninni. Ef kylfingar eru jafnir þá gildir 5. hringurinn, svo 6. hringurinn og svo koll af kolli þangað til úrslit nást. Ef það nægir ekki ræður hlutkesti.

Stillingar: 
Flatir: Medium
Flatir stimp: 9 fet
Holustaðsetningar: Medium
Vindur: Calm
Pútt: Auto Fixed (1 pútt <3 metra, 2 pútt 3,1-20 metra, 3 pútt >20 metra)

Mulligans:
Mulligans eru leyfðir í mótinu ef um tæknilega villu er að ræða, t.d. “draugahögg”. Það mun sjást á skorkortinu ef mulligan er notaður og þarf leikmaður að senda skriflega skýringu til [email protected].

Veitt verða glæsileg verðlaun frá PING fyrir efstu þrjú sætin í heildarkeppninni í karla- og kvennaflokki.

Einnig verða veitt verðlaun fyrir efsta sætið í höggleik án forgjafar í kvenna- og karlaflokki.

Nándarverðlaun verða á tveimur par þrjú brautum í hverju móti.

Vellirnir

TrackMan býður upp á yfir 550 glæsilega golfvelli og því úr miklu úrvali að velja velli til leika á. 

Vellirnir í mótaröðinni eru mjög fjölbreyttir en allir þó viðráðanlegir sem kylfingar ráða við og geta notið þess að leika á.

Birt með fyrirvara um breytingar