Golfleikjanámskeið GKG

SKRÁ Á GOLFLEIKJANÁMSKEIÐ

 ATH!!  Opnað verður fyrir skráningu á golfleikjanámskiðin í byrjun apríl  

 

Um golfleikjanámskeiðið

Á námskeiðunum er lögð áhersla á að kynna íþróttina fyrir börnum í gegnum golftengda leiki og hreyfingu. Nemendum skipt í tvo aldurshópa, 6 til 9 ára og 10 til 12 ára og eftir kyni, sé þess kostur. Námskeiðum lýkur síðan með pylsuveislu og verðlaunaafhendingu.

Aðstaða og búnaður

Golfleikjanámskeiðin fara fram í GKG við Vífilstaðaveg.

Börnin hafa með sér nesti og ef veður er óhagstætt þá er hægt að leita skjóls í golfskálanum.

Ekki er nauðsynlegt að eiga golfkylfur til að taka þátt í námskeiðum hjá GKG því búnaður er til láns meðan á námskeiði stendur.

Dagsetningar og tími 2026:

Námskeið 1: 15.júní – 19.júní

Námskeið 2: 29.júní – 3.júlí

Námskeið 3: 13.júlí – 17.júlí

Námskeið 4: 27.júlí – 31.júlí

Námskeið 5: 10.ágúst – 14.ágúst

Námskeið 6: 17.ágúst – 21.ágúst

Hægt er að velja um námskeið kl. 9-12 eða kl. 13-16.

 

Verð:

5 daga námskeið kr. 

Ath. Þátttaka á golfleikjanámskeiðunum veitir aukafélagsaðild í GKG. Innifalið í aukaaðild er aðgangur að 6 holu æfingavellinum fyrir barnið og fjölskyldumeðlimi til að koma og leika sér á þegar námskeið eru ekki í gangi.

Hægt að stunda æfingar frá 7 ára aldri hjá GKG sem félagsmaður. Nánari upplýsingar um æfingatöflur, verðskrá ofl. er að finna hér.

 

 

Markmið golfleikjanámskeiðanna

Að kynna golfíþróttina fyrir börnunum og ýta undir áhuga þeirra á því að leggja stund á þessa fjölskylduvænu íþrótt. Farið er í helstu þætti golfleiksins, allt frá púttum til upphafshögga og eru leiðbeiningar gjarnan í formi golfleikja ýmiss konar. Einnig verður lögð áhersla á að kynna helstu golfsiði og golfreglur fyrir nemendum. Mikilvægt er að á golfnámskeiðinu séu einnig fjölbreyttir leikir sem efla hreyfiþroska barnanna svo sem samhæfingu, liðleika og jafnvægi, enda eru það mikilvægir þættir í hreyfingum golfsveiflunnar. Forgangsatriði námskeiðanna eru að þau séu örugg, skemmtileg, og að börnin njóti sín og þrói jákvætt viðhorf til golfíþróttarinnar.

Leiðbeinendur:

Leiðbeinendur eru úr hópi afrekskylfinga GKG á aldrinum 16 til 21 árs, flest með verulega reynslu af námskeiðshaldi. Þess verður gætt eftir fremsta megni að hópar undir umsjón leiðbeinanda verði ekki skipaðir fleiri en 8 börnum.

Umsjón með skráningum og frekari upplýsingar veitir Haukur Már Ólafsson, haukur@gkg.is

SKRÁ Á GOLFLEIKJANÁMSKEIÐ