Golfkennsla
Almenn golfnámskeið

Námskeið fyrir nýja GKG-inga

Golfakademía GKG býður upp á almenn námskeið allt árið um kring. Upplýsingar um námskeið í boði er að finna í fréttum á heimasíðu GKG sem og hlekknum hér

 

Athugið! Námskeiðið á þessari síðu er einungis í boði fyrir nýja félaga í GKG sem greitt hafa inntökugjald og félagsgjald fyrir árið 2026.

Okkar markmið að bjóða nýja félaga velkoma og veita þeim fræðslu hvað varðar tækni, reglur og klúbbinn og þannig að njóta betur alls þess sem GKG hefur upp á að bjóða.

Eftirfarandi dagsetningar standa til boða – skráningarform eru neðar á síðunni:

Hámarksfjöldi í hverjum hópi er 12. Eftir það er biðlisti.

Mánudagar Staðsetning Tímasetning Tímasetning
4. maí Íþr.miðstöð – golfhermar Hópur 1: kl. 19-20 Hópur 2: kl. 20-21
11. maí Íþr.miðstöð – golfhermar Hópur 1: kl. 19-20 Hópur 2: kl. 20-21
18. maí Íþr.miðstöð – golfhermar Hópur 1: kl. 19-20 Hópur 2: kl. 20-21
25. maí Íþr.miðstöð – golfhermar Hópur 1: kl. 19-20 Hópur 2: kl. 20-21
       
Miðvikudagar Staðsetning Tímasetning Tímasetning
6. maí Íþr.miðstöð – golfhermar Hópur 3: kl. 19-20 Hópur 4: kl. 20-21
13. maí Íþr.miðstöð – golfhermar Hópur 3: kl. 19-20 Hópur 4: kl. 20-21
20. maí Íþr.miðstöð – golfhermar Hópur 3: kl. 19-20 Hópur 4: kl. 20-21
27. maí Íþr.miðstöð – golfhermar Hópur 3: kl. 19-20 Hópur 4: kl. 20-21

 

Auk námskeiðsins verður í boði sérstök golfreglufræðsla fyrir byrjendur. Val um að mæta 12. maí eða 19. maí kl. 20-22. Reglufræðsla fer fram í fundarsal GKG, innan af stóra veitingasalnum. 

Loks verður einnig spilkennsla í boði 21. maí kl. 17:30-19. PGA kennarar leika 3 holur og nemendur fylgjast með. Áhersla er á praktíska notkun golf- og siðareglna – Mæting við kerrutorg fyrir utan klúbbhúsið. Spilkennslan er fyrstu og fremst ætluð óreyndari kylfingum. Reyndari kylfingar ættu að þekkja flest af því sem farið er yfir en eru þó að sjálfsögðu velkomnir. Mæting við kerrutorg fyrir utan klúbbhúsið.

Umsjón með námskeiðinu hafa PGA kennarar GKG

Námskeiðið er innifalið fyrir nýja félaga sem greitt hafa inntökugjald í GKG. 

Ekki verða fleiri námskeið með þessu sniði í sumar og viljum við því hvetja ykkur til að nýta þetta tækifæri til að ná góðum tökum á golfinu núna í upphafi tímabils. Það verða þó alltaf almenn hópnámskeið og einkakennsla í boði (ekki innifalin í inntökugjaldi).

 

Birt með fyrirvara um breytingar.

Námskeið fyrir nýja GKG-inga - Skráning í hóp 1 (Mán 4.5, 11.5, 18.5, 25.5 kl 19-20)

ATH hámarksfjöldi er 12 manns

 

Það er því miður fullt á þetta námskeið en nafn þitt er komið á biðlista. Haft verður samband ef sæti losnar.

 

 

Námskeið fyrir nýja GKG-inga - Skráning í hóp 3 (Mið 6.5, 13.5, 20.5, 27.5 kl 19-20)

ATH hámarksfjöldi er 12 manns

 

 

Námskeið fyrir nýja GKG-inga - Skráning í hóp 4 (Mán 6.5, 13.5, 20.5, 27.5, kl 20-21)

ATH hámarksfjöldi er 12 manns