Icelandair VITA Peter Salmon Golf Mánudagsmótaröð GKG
18.05.2026 – 10.08.2026
Icelandair VITA Peter Salmon Golf mánudagsmótaröðin er punktamót fyrir félagsmenn GKG. Spilað verður í tveimur flokkum, karlaflokki og kvennaflokki, og stendur mótið yfir stærstan hluta sumarsins. Mótaröðin er ein sú allra flottasta sem kylfingar geta tekið þátt í enda verðlaunin ekki af verri endanum en fyrsta sæti í karla og kvennaflokki fá sæti í næstu golfferð GKG með VitaGolf.
Kylfingar hafa 12 tilraunir til þess að ná inn fjórum góðum hringjum, en það eru bestu fjórir hringirnir sem telja til úrslita. Mótið hefst þann 18.05.2026, og verður spilað á hverjum mánudegi, fyrir utan Meistaramótsvikuna, fram til 10.08.2026.
Þar sem nýtt rástímabókunarkerfi var innleitt fyrir sumarið 2025 þá er ekki hægt að forbóka rástíma með þátttöku í mótinu eins og áður. Kylfingar einfaldlega nota eitt af sínum “tókenum” til að bóka rástíma fram í tímann.
ATH þegar þið skráið ykkur í hvert mót skuluð þið velja hvaða teig þið ætlið að spila á. Þeir aðilar sem skila skorkorti með engri eða rangri leikforgjöf/vallarforgjöf fá frávísun á viðkomandi hring. Ef réttur teigur er hringaður á skorkortinu, jafngildir það réttri leikforgjöf.
Hægt er að fylgjast með stöðu mótaraðarinnar á golfbox, en sérstakur stigalisti er fyrir mótið.
Við hvetjum einnig alla þátttakendur til þess að fylgjast með Icelandair VITA Peter Salmon Golf Mánudagsmótaröðinni á Facebook.
Vegleg verðlaun verða veitt fyrir efstu þrjú sætin, bæði í karla– og kvennaflokki. Verðlaunaskrá 2026, í hvorum flokki verður kynnt síðar.
Mótsgjald er einungis kr. 500 per mót sem greitt er við skráningu. Ekki er hægt að fá endurgreitt eða inneign ef hætt er við þátttöku.
Mótsstjórar árið 2026 eru Sigfinnur Helgi Gunnarsson og Úlfar Jónsson.