Golfleikjanámskeið GKG
Um golfleikjanámskeiðið
Á námskeiðunum er lögð áhersla á að kynna íþróttina fyrir börnum í gegnum golftengda leiki og hreyfingu. Iðkendur námskeiðanna er á aldrinum, 6 til 11 ára(2020-2015). Námskeiðum lýkur síðan með pylsuveislu og verðlaunaafhendingu.

Aðstaða og búnaður
Golfleikjanámskeiðin fara fram í GKG við Vífilstaðaveg.
Börnin hafa með sér nesti og ef veður er óhagstætt þá er hægt að leita skjóls í golfskálanum.
Ekki er nauðsynlegt að eiga golfkylfur til að taka þátt í námskeiðum hjá GKG því búnaður er til láns meðan á námskeiði stendur.
Dagsetningar og tími 2026:
Námskeiðsvika 1: 15.júní – 19.júní (4 dagar)
Námskeiðsvika 2: 22.júní – 26.júní (5 dagar)
Námskeiðsvika 3: 29.júní – 3.júlí (5 dagar)
Námskeiðsvika 4: 13.júlí – 16.júlí (4 dagar)
Námskeiðsvika 5: 20.júlí – 22.júlí (3 dagar)
Námskeiðsvika 6: 27.júlí – 31.júlí (5 dagar)
Námskeiðsvika 7: 3ágúst – 7.ágúst (4 dagar)
Námskeiðsvika 8: 10.ágúst – 14.ágúst (5 dagar)
Hægt er að velja um námskeið kl. 9-12 eða kl. 13-16(þó ekki allar vikurnar).
Verð:
5 daga námskeið kr. 18.000kr
4 daga námskeið kr. 14.400kr
3 daga námskeið 10.800 kr
Ath. Þátttaka á golfleikjanámskeiðunum veitir aukafélagsaðild í GKG. Innifalið í aukaaðild er aðgangur að 6 holu æfingavellinum fyrir barnið og fjölskyldumeðlimi til að koma og leika sér á þegar námskeið eru ekki í gangi.
Markmið golfleikjanámskeiðanna
Að kynna golfíþróttina fyrir börnunum og ýta undir áhuga þeirra á því að leggja stund á þessa fjölskylduvænu íþrótt. Farið er í helstu þætti golfleiksins, allt frá púttum til upphafshögga og eru leiðbeiningar gjarnan í formi golfleikja ýmiss konar. Mikilvægt er að á golfnámskeiðinu séu einnig fjölbreyttir leikir sem efla hreyfiþroska barnanna svo sem samhæfingu, liðleika og jafnvægi, enda eru það mikilvægir þættir í hreyfingum golfsveiflunnar. Forgangsatriði námskeiðanna eru að þau séu örugg, skemmtileg, og að börnin njóti sín og þrói jákvætt viðhorf til golfíþróttarinnar.
Leiðbeinendur:
Leiðbeinendur eru úr hópi afrekskylfinga GKG á aldrinum 16 til 21 árs, flest með verulega reynslu af námskeiðshaldi. Þess verður gætt eftir fremsta megni að hópar undir umsjón leiðbeinanda verði ekki skipaðir fleiri en 8 börnum.
Umsjón með skráningum og frekari upplýsingar veitir Haukur Már Ólafsson, haukur@gkg.is