Birgir Leifur endaði á 1 yfir pari
Birgir Leifur náði heldur betur að laga til stöðuna eftir slæma byrjun í morgun. Hann endaði hringinn í dag á 1 höggi yfir pari eftir að hafa verið kominn 4 högg yfir eftir fyrstu 5 holurnar.
Hann virðist því vera í ágætis málum […]


Birgir Leifur mun hefja leik á Telenet Trophy, á Limburg golfvellinum í Belgíu klukkan 8:10 í fyrramálið. Hann mun hefja leik á 1. teig ásamt frakkanum David Olivier sem náði ekki í gegn um niðurskurð á mótinu um síðustu helgi og […]
Birgir Leifur er nú að halda til Belgíu þar sem hann mun taka þátt í Telenet Trophy golfmótinu sem er liður í Áskorendamótaröðinni og verður haldið á Limburg Golf & Country Club. Mótið hefst á fimmtudag og stendur fram á sunnudag. Skorið er niður eftir 2 daga og því mikilvægt fyrir Birgi Leif að leika vel.