Slide

Ingunn sigraði á Hellu

Fyrsta mót ársins á Kaupþingsmótaröðinni fór fram á Strandavelli á Hellu um helgina. Eins og ávallt tóku margir afrekskylfingar frá GKG þátt og átti GKG til dæmis flesta keppendur í kvennaflokki. Árangurinn hjá okkar fólki var upp og ofan en glæsilegur var hann þó […]

By |25.05.2008|Categories: Fréttir almennt|

Leirdalurinn opnaður í dag

Leirdalshluti Vífilsstaðavallar opnaði í dag fyrir sumarið með pompi og prakt. Haldið var innanfélagsmót í tilefni dagsins og lukkaðist það stórvel, 135 manns mættu og öttu kappi á vellinum sem kemur frábærlega undan vetri. Veðrið var þolanlegt, örlítið kalt en annars vel spilandi. Greinilegt er að sumarið leggst vel í […]

By |24.05.2008|Categories: Fréttir almennt|

Árleg endurskoðun forgjafar

Forgjafarnefnd GKG hefur framkvæmt árlega endurskoðun forgjafar hjá öllum kylfingum í GKG.

 

Endurskoðun þessu er framkvæmd samkvæmt reglum um EGA forgjafarkerfið. Hægt er að nálgast þessar reglur á www.golf.is undir útgefið efni.

 

Við endurskoðun kom í ljós að í GKG voru 991 með skráða forgjöf en þar af voru 331 með óvirka forgjöf. Af þeim sem voru með virka forgjöf fengu 236 kylfingar leiðréttingu á forgjöfinni. 35 fengu hækkun en 201 lækkun.

 

Þeir sem eru með óvirka forgjöf þurfa að skila inn 3 gildum skorum til að forgjöf þeirra verði virk. Á það er minnt að nú geta kylfingar í forgjafarflokkum 3-5 (fgj. 11,5 og upp úr) skilað inn skorum eftir 9 holu hring. Kylfingar með óvirka forgjöf er heimil þátttaka, en geta ekki unnið til verðlauna í mótum sem GKG stendur fyrir.

 

Við birtum hér lista yfir þá kylfinga sem fengu leiðréttingu og eru þeir hvattir til að kynna sér nýju forgjöfina sína. Smellið á „Lesa meira“ til að sjá listann

By |18.05.2008|Categories: Fréttir almennt|

Opnunarmót Leirdals 2008

Næstkomandi laugardag, þann 24. maí, opnar Leirdalshluti Vífilsstaðavallar í fyrsta skipti í sumar. Af því tilefni hefur verið ákveðið að efna til glæsilegs innanfélagsmóts þann sama dag og gefa félagsmönnum því tækifæri á að spila völlinn fyrstir allra. Völlurinn er stórglæsilegur og er […]

By |16.05.2008|Categories: Fréttir almennt|

Áætlun kvennanefndar 2008

Nú hefur kvennanefnd GKG lokið skipulagningu starfs síns í sumar og sett saman glæsilega áætlun fyrir sumarið. Hefst starfið formlega með rauðvínskvöldinu árlega en það fer einmitt fram í kvöld. Síðan er dagskráin þéttskipuð út sumarið.

 

Smellið á "Lesa meira" til að sjá áætlun kvennanefndar 2008

By |16.05.2008|Categories: Fréttir almennt|

Frá vallarstjóra

Til stóð að opna nýrri hluta vallarins um helgina en vallarstjóri hefur ákveðið að bíða með það í viku þar sem ýmis verk eru ókláruð og einnig töluvert af bleytu í sumum brautum.

Stefnt er þá að opnun laugardaginn 24 maí.

GKG og Kópavogsbær […]

Sími í rástímaskráningu

Vegna bilana í símkerfi er ekki hægt að ná sambandi við klúbbinn í síma.

 

Hægt er að hafa samband við rástímaskráningu í síma 897-7773. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

By |10.05.2008|Categories: Fréttir almennt|

Opnun Vífilsstaðavallar

Í dag, laugardaginn 10. maí, opnaði GKG inn á umferð á sumargrín á Vífilsstaðavelli. Ákveðið hefur verið að gefa Leirdalshlutanum eina viku í viðbót til þess að jafna sig eftir veturinn og því er félagsmönnum bent á að fram til laugardagsins 17. maí gildir eftirfarandi kerfi á Vífilsstaðavelli.

    By |10.05.2008|Categories: Fréttir almennt|
    Go to Top