Til að endurmeta forgjöf kylfings þá þarf kylfingurinn að skila inn skorum til forgjafarnefndar til að hægt sé meta getuna. Vitna má í leikna hringi á golf.is eða skila inn skorkortum.  Því fleiri því betra. Skorkortin þurfa að vera undirrituð af þekktum ritara og leika verður á velli með þekktu mati og vægi (cr/slope).

Upphafsforgjöf kylfings er metin út frá fimm 9-holu hringjum eða þremur 18-holu hringjum.  Þetta er algjört lágmark við endurmat forgjafar. Kylfingar eru því hvattir til að leggja fram fleiri skor.

Ef skilað er inn skorkorti fyrir 18 holu hring er hvor 9 holu helmingur skoðaður sjálfstætt.

Notað besta skorið miðað við 9 holur og núverandi forgjöf kylfingsins. Hér þarf einnig að hafa það í huga að ef kylfingur skilar inn fleiri en 4 hringjum á ári þá getur forgjöfin hækkað um allt að 2 við árlega endurskoðun.

Notuð er sama aðferðafræði og í EGA forgjafarkerfinu við að meta 9 holu hringi. Það er, bætt er við 18 punktum við punktafjöldan. Ef kyflingurinn er að fá 33 punkta eða fleiri á besta 9 holu hringnum, miðað við þessa aðferð, er ekki ástæða til leiðréttingar.

32 (14) punktar, hækka mest um 0,5.

31 (13) punktar, hækka mest um 1,5.

30 (12) punktar, hækka mest um 2.

29 (11) punktar eða færri, hækka mest um 2,5.

Forgjafarnefndin getur í undantekningar tilfellum farið út fyrir þennan ramma liggi mörg skor fyrir yfir lengri tíma.