Golfbox hjálp

Almennt viljum við benda fólki á að leita sér upplýsinga og aðstoðar á golf.is þar sem GSÍ hefur útbúið greinargóðar hjálparsíður með myndböndum og fleiru. 

Hér að neðan má finna nokkra mikilvæga punkta fyrir komandi sumar.

Rástímakerfið

Þegar kylfingar bóka rástíma á völlum GKG ber að hafa eftirfarandi í huga:

  1. Rástímar á höfuðborgarsvæðinu eru afar verðmætir. Sjáir þú ekki fram á að geta nýtt rástíma þinn skaltu afbóka hann um leið, en minnst klukkustund fyrir tímann.
  2. Þegar þú ert mætt/ur á svæðið skaltu staðfesta mætingu þína í Golfbox appinu, sjá leiðbeiningar hér að neðan.
  3. Verði kylfingar uppvísir að því að bóka rástíma og nýta þá ekki áskilur klúbburinn sér rétt til að útiloka viðkomandi frá rástímabókunum í ákveðinn tíma. 

Svona skráir þú þig á rástíma:

Hér er stutt hjálparmyndband frá GSÍ um rástímaskráningu í appinu.

Hér er ítarleg aðstoð frá GSÍ við rástímaskráningu fyrir bæði vafra og app.

Hér eru fleiri gagnlegar upplýsingar.

 

Aðgangurinn þinn

Ef þú átt í erfiðleikum með að komast inn á aðganginn þinn á golfbox eru nokkur ráð:

  1. Finnurðu ekki aðildarnúmerið þitt?
    1. Leitaðu í tölvupóstinum þínum að “IS-5”, þú ættir að hafa fengið tölvupóst með aðildarnúmerinu þínu þegar þú varst fyrst skráð/ur
  2. Manstu ekki lykilorðið þitt?
    1. Þú getur fengið endursent lykilorð með því að fara á golfbox.golf og smella á “Forgot your password??”
    2. Ef það gengur ekki geturðu haft samband við skrifstofu eða Proshop.

Við mælum með því að þú biðjir bæði appið og vafrann sem þú notar mest til þess að muna eftir þér, þannig þarftu ekki að skrá þig inn aftur og aftur.

 

Hér eru greinagóðar leiðbeiningar frá GSÍ fyrir bæði app og vafra.

Skráning í mót

Þegar þú skráir þig í mót þarftu að hafa þolinmæðina með þér í liði. 

  1. Ef annar einstaklingur er að bóka rástímann sem þú ætlaðir að skrá þig á læsist hann í 180 sekúndur og opnast svo aftur. Þannig er best að sýna þolinmæði og bíða, til að skrá sig svo. 
    1. Athugið að starfsfólk GKG er einnig læst úti þegar rástími er læstur, því getum við því miður ekki aðstoðað á meðan svo er.
  2. Ef mótið er þannig að þú getur skráð þig og meðspilara þína þá VERÐUR þú að hafa aðildarnúmer þeirra tilbúin.
    1. Þau eru sett inn með eftirfarandi hætti: 5-XXXX

Það verður að skrá sig í mót í gegnum golfbox og greiða fyrir mótið við skráningu. Ef þú hættir við þátttöku innan við sólarhring frá móti er mótsgjaldið endurgreitt.

Upphitun í golfhermum

Kylfingar hafa möguleika á því að hita upp í golfhermum GKG í 15 mínútur á 500 kr. Þessa þjónustu getur þú keypt um leið og rástíminn er bókaður eða þegar þú mætir í klúbbhúsið. 

Þegar þú mætir í upphitun skaltu hafa samband við starfsfólk golfverslunar GKG sem opnar hermi fyrir þig.