Opna Ecco Minningarmót GKG til styrktar íþrótta- og afrekssviði GKG verður haldið á Leirdalsvelli GKG laugardaginn 29. ágúst . Í mótinu höldum við sérstaklega uppi minningu þeirra Jóns Ólafssonar, Ólafs E. Ólafssonar og Konný Hansen sem áttu drjúgan þátt í að gera GKG að því sem klúbburinn er í dag.

Skráning er hafin á Golfbox.

Keppnisfyrirkomulag:

Mótið er punktamót og er hámarksforgjöf 36 hjá körlum og 36 hjá konum. Keppt er í karla- og kvennaflokki. Glæsileg verðlaun eru fyrir 3 efstu sætin í báðum flokkum og eru nándarverðlaun á öllum par 3 holum. Einnig verða veitt verðlaun fyrir besta skor án forgjafar í karla- og kvennaflokki.

 „Iss ég para bara næstu“ verðlaunin verða á sínum stað. Þeir aðilar sem fá skolla eða meira á 15. holu og para þá 16. fara í pott sem dregið verður úr og mun sá eða sú heppna 10.000,-kr gjafabréf á Matarkjallaranum, 10.000,-kr gjafabréf í Olís og gjafabréf fyrir tvo í Reykjavík Escape.

 

 

Verðlaun eru glæsileg að vanda og eru þau eftirfarandi (veitt eru verðlaun í karla og kvennaflokki).

Punktakeppni með forgjöf.

  1. sæti Ecco golfskór að verðmæti allt að 30.000,-kr, Gjafabréf fyrir gistingu í tveggja manna herbergi með morgunverði í eina nótt á Íslandshóteli að eigin vali. 10.000,-kr gjafa bréf í Olís
  2. sæti Skechers golfskór að verðmæti allt að 20.000,- kr, gjafabréf fyrir tvo í Reykjavík Escape og 10.000,-kr gjafabréf í Olís.
  3. sæti Ecco Kerrupoki og 10.000,-kr gjafabréf í Olís

 

Höggleikur án forgjöf (veitt er verðlaun fyrir besta skor í báðum flokkum)

  1. sæti Ecco golfskór að verðmæti allt að 30.000,-kr og 15.000,-kr gjafabréf á Matarkjallaranum

 

Nándarverðlaun veitt á öllum par 3 holum vallarins.

Gjafabréf í Ecco búðinni að upphæð 15.000,-kr

 

Vegna Covid-19 þá verður engin verðlaunaafhending í skála en úrslit verða birt á heimasíðu GKG og verðlaunahafar geta nálgast verðlaunin sín á skrifstofu GKG.

 

Allir keppendur fá teiggjöf sem hægt verður að nálgast í Proshop.

 

Verð 5.900,-kr

Við viljum sérstaklega þakka stuðningsaðilum barna-, unglinga- og afreksstarfs GKG fyrir þeirra stuðning.

                     

 

Hlökkum til að sjá ykkur,

Íþrótta- og afreksnefnd GKG