Kæru félagsmenn,
Nú í dag er vorið formlega komið og því blásum við til félagsfundar fimmtudaginn 11. apríl kl. 20:00.
Dagskráin er:
- Sumardagskráin
- Vinarvellirnir
- Hvernig kemur völlurinn undan vetri, hvaða framkvæmdir höfum við verið í og hin klassíska spurning, hvenær opnar völlurinn
- Samstarfsverkefni GKG og Garðabæjar um framtíðarskipan Hnoðraholtsins. Hver er staðan, hvað breytist í ár og hver er tímaramminn
Boðið verður upp á léttar veitingar
Stjórn og starfsfólk GKG