Birgir Leifur hefur heldur gefið eftir á seinni 9 holunum. Hann hefur parað fyrstu 4 holurnar en fékk síðan skolla á 14. og 15. holu og er því á +1 höggi yfir pari og hefur fallið niður í 42. – 50. sæti. Þetta gerir róðurinn erfiðari fyrir Birgi Leif þar sem hann þarf að vinna upp líklega 3 högg til að koma sér í topp 30 það sem eftir er af hring dagsins og á morgun.