Háttvísibikarinn er gjöf frá GSÍ í tilefni af 20 ára afmælis GKG. Bikarinn var afhentur GKG á þessum tímamótum klúbbsins í mars 2014.

Bikarinn er veittur þeim unga kylfingi sem þykir hafa skarað fram úr á árinu hvað varðar árangur og framfarir, ástundun, metnað til að ná langt, félagsanda og ekki síst fyrirmynd annara félagsmanna, hvað varðar háttvísi innan vallar sem utan.

Hér fyrir neðan má sjá nöfn þeirra kylfinga sem hlotið hafa þessa sæmdarviðurkenningu:

Ár Nafn
2024 Karen Lind Stefánsdóttir
2023 Gunnlaugur Árni Sveinsson
2022 Katrín Hörn Daníelsdóttir
2021 Jón Þór Jóhannsson
2020 Róbert Leó Arnórsson
2019 Anna Júlía Ólafsdóttir
2018 Jón Gunnarsson
2017 Hulda Clara Gestsdóttir
2016 Hlynur Bergsson
2015 Elísabet Ágústsdóttir
2014 Aron Snær Júlíusson