Par 4 Fgj. 3/4

Fyrsta holan á Mýrinni er fremur stutt par 4 hola sem liggur í hundslöpp til hægri.
Í upphafshögginu þurfa kylfingar að gæta sín á því að fara ekki til hægri því þar eru vallarmörk. Vinstra megin við brautina er þykkur kargi sem oft er erfiður viðureignar.
Flötin er meðalstór og er varin að tveimur sandglompum. Lengdarstjórn skiptir máli í innáhögginu.
Par 3 Fgj. 17/18

Önnur holan er fremur stutt en strembin par 3 hola.
Flötin er ílöng og vel varin af hólum með þykkum karga, svo innáhöggið getur reynst kylfingum erfitt.
Vinstra megin meðfram flötinni er vítasvæði og á milli hennar og flatarinnar mjög þykkur kargi sem erfitt er að koma sér upp úr.
Hægra megin meðfram brautinni og flötinnni liggur göngustígur og enn utar er vítasvæði
Skiptir því nákvæmni hér máli ætli kylfingar sér að hitta flötina, en erfitt getur verið að ná boltanum alveg inn að pinna.
Par 4 Fgj. 7/8

Þriðja holan er ein einfaldasta hola Mýrarvallarins, mjög stutt par 4 hola sem býður upp á mikil tækifæri fyrir kylfinga.
Upphafshöggið er einfalt og er mikið svæði sem kylfingar geta unnið með.
Brautin er fremur breið og báðum megin við hana er kargi sem yfirleitt er ekki erfiður viðureignar. Varast ber þó að fara of mikið af leið því vítasvæði er hægra megin við kargann og vinstra megin eru nokkrar sandglompur sem þeir allra högglengstu þurfa að hafa áhyggjur af.
Reyndar er það svo að þeir sem slá lengst eiga mikinn möguleika á að ná inn á eða að flötinni í fyrsta höggi.
Flötin sjálf er mjög stór og auðvelt er að komast inn á hana með háu innáhöggi. Tvær sandglompur verja hana að framan og hægra megin við flötina eru vallarmörk.
Annars er hún svo stór að innáhöggið á ekki að valda kylfingum teljandi vandræðum og yfirleitt hægt að “berja” boltann inn að pinna.
Par 3 Fgj. 11/12

Fjórða holan er fremur löng par 3 hola sem getur strítt kylfingum töluvert.
Meðfram henni allri liggja vallarmörk vinstra megin og vítasvæði hægra megin, svo vanda þarf til verka við innáhöggið.
Aðkoman að flötinni getur verið strembin og skiptir miklu máli að stjórna lengd innáhöggsins vel. Sé það of langt tekur á móti boltanum hóll og fyrir aftan hann stór skurður.
Fyrir framan flötina er stór sandglompa sem tekur marga bolta, sérstaklega þá sem miðað er inn að pinna. Vinstra megin er svo tjörn, en hún er reyndar varla í leik nema höggið misheppnist mjög illa.
Par 4 Fgj. 15/16

Fimmta holan er löng og bein par 4 hola.
Brautin sjálf er fremur þröng, en það kemur þó ekki að sök því ekki eru teljandi vandræði fyrir utan brautina nema kargi, sem reyndar er yfirleitt mjög þykkur.
Þó liggja vallarmörk vinstra megin meðfram allri brautinni, en yfirleitt valda þau kylfingum ekki teljandi vandræðum.
Flötin er stór og liggur fyrir ofan kylfinga þegar innáhöggið er slegið. Hún er ekki varin af neinum sérstökum hættum, en sandglompan hægra megin við hana er yfirleitt ekki í leik. Par er gott skor hér.
Par 4 Fgj. 1/2

Sjötta holan er krefjandi og flókin par 4 hola.
Hún er fyrri holan af vatnaholunum svokölluðu og skiptir miklu máli fyrir kylfinga að vera nákvæmir. Stórar tjarnir liggja báðum megin við þrönga brautina og því verður að vanda til verka við upphafshöggið. Oft er sniðugt að gefa drævernum frí á þessari og reyna að stilla boltanum upp á góðan stað, því brautin er ekki löng og auðvelt er að koma sér inn á flöt nánast hvaðan sem er af brautinni.
Flötin sjálf er upphækkuð og grunn en breið og reynist oft erfitt að ná réttri lengd í innáhögginu. Betra er að vera of stuttur en of langur því að baki hennar er stór hóll og þar aftan bleyta sem erfitt er að bjarga sér úr.
Hægra megin við flötina er vítasvæði sem ber að varast.
Par 5 Fgj. 9/10

Sjöunda holan er ansi strembin en er leikin sem par 5 hola og því er hægt með skynsemi að gefa sér möguleika á fugli.
Upphafshöggið getur reynst kylfingum erfitt því stórar tjarnir liggja hægra megin meðfram brautinni. Högglangir kylfingar geta náð yfir tjarnirnar og breiðan hluta brautarinnar.
Trjágróður er vinstra megin, en lendi boltinn þar þýðir það að nánast ómögulegt er að komast inn á flöt í tveimur höggum.
Flötin sjálf er fremur lítil og vel varin af glompum, hólum og trjám. Innáhöggið þarf að vera mjög nákvæmt ætli kylfingar sér að ná góðu skori á þessari krefjandi holu.
Par 4 Fgj. 5/6

Áttunda holan er fremur stutt par 4 hola en liggur öll upp í móti.
Brautin er fremur breið og að frátöldum þremur glompum hægra megin er ekki mikið um hættur þegar upphafshöggið er slegið.
Þægilegast er að vera vinstra megin á brautinni því þar er best að slá innáhöggið inn á flötina. Flötin er fremur smá og hallar að kylfingum. Glompur verja hana fyrir framan og hólar fyrir aftan skila boltanum oftast til baka að flöt. Hægra megin er mikill halli og getur boltinn kastast til hliðar, jafnvel út fyrir vallarmörk.
Par 3 Fgj. 15

Mýrin endar með þægilegri par 3 holu sem getur samt refsað kylfingum.
Flötin er stór og hallar að kylfingum. Hún er þó vel varin af glompum sem hreinlega soga til sín bolta. Allt í kringum hana er mjög þykkur kargi sem erfitt getur verið að bjarga sér úr.
Brautin er hörð fyrir framan flötina þannig að oft nægir að taka járn með númeri minna og lenda fyrir framan því boltinn skilar sér áfram.