Aðalfundur GKG 2017 verður haldinn í Íþróttamiðstöð GKG þriðjudaginn 28. nóvember kl. 20:00.
Dagskrá fundarins verður þannig, skv. 10. gr. laga GKG:
1. Fundarstjóri og fundarritari kosnir.
2. Skýrsla stjórnar um störf og framkvæmdir á liðnu starfsári.
3. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram til samþykkis.
4. Rekstrar- og fjárfestingaáætlun komandi starfsárs kynnt.
5. Lagabreytingar og aðrar tillögur skv. 8. gr. teknar til afgreiðslu.
6. Kosning formanns til eins árs.
7. Kosning fjögurra meðstjórnenda til tveggja ára
8. Kosning endurskoðanda eða endurskoðendafélags.
9. Önnur mál.
Fundargerð síðasta aðalfundar ásamt tillögu um lagabreytingu má finna á heimasíðu GKG með því að smella hér.
Stjórn GKG