Aðalfundur GKG 2025
Kæru félagar, aðalfundur GKG verður haldinn fimmtudaginn 4. desember kl. 20:00 í Íþróttamiðstöðinni.
Minnum félagsmenn á að framboð til stjórnar þarf að berast á skrifstofu klúbbsins eða í tölvupósti á agnar@gkg.is viku fyrir aðalfund eða 27. nóvember.
Dagskrá fundarins er með eftirfarandi hætti.
- Fundarstjóri og fundarritari kosnir.
- Skýrsla stjórnar um störf og framkvæmdir á liðnu starfsári.
- Endurskoðaðir reikningar lagðir fram til samþykkis.
- Rekstrar- og fjárfestingaáætlun komandi starfsárs kynnt.
- Lagabreytingar og aðrar tillögur skv. 8. gr. teknar til afgreiðslu.
- Kosning formanns til eins árs.
- Kosning fjögurra meðstjórnenda til tveggja ára
- Kosning endurskoðanda eða endurskoðendafélags.
- Önnur mál.
Með GKG kveðjum,
Stjórn GKG