Kæru félagsmenn,

Nú hefur Golfklúbbur Akureyrar bæst við í vinarvallarflóru GKG en félagsmenn fá 35% afslátt af vallargjöldum GA.

Undanfarin ár hefur GA unnið að metnaðarfullu uppbyggingarstarfi á sínum margrómaða velli. Því er það frábær möguleiki fyrir okkur GKG-inga að geta spilað völlinn þeirra með 35% afslætti þegar við eigum leið norður um land.