Árni Zophoniasson gerði sér lítið fyrir og fór holu í höggi á 13. holu Leirdalsvallar á síðasta degi meistaramóts GKG.  Pinninn var um 140 metra frá teig og sló Árni með fimm járni. Árni smell hitti boltann og lenti hann á flötinni fékk eitt hopp en spann svo til baka í holuna. Sannkallað meistarahögg hjá Árna og óskum við honum innilega til hamingju.