Ásgeir Nikulás Ásgeirsson gerði sér lítið fyrir og fór holu í höggi á lokadegi 3. flokks karla í Meistaramóti GKG. Ásgeir var ekkert að gera mikið úr árangrinum en draumahöggið sló hann á 4. holu Leirdalsvallar. „Ég sló bara í hvítu kúluna, hitti hana og hún endaði í holu. Þeir sem voru í hollinu mínu hoppuðu og skoppuðu, ég var slakur en verð þó að viðurkenna að ég var alveg sáttur við að þurfa ekki að pútta“. Ásgeir var ekkert að festa „mómentið“ á filmu en meðfylgjandi mynd náðist af honum inn í skála á eftir í góðum félagsskap Tobbu og Jóhönnu.
Við hjá GKG óskum Ásgeiri innilega til hamingju með draumahöggið.