Birgir Leifur náði að vinna upp 1 högg er hann náði fugli á 12. holunni og er á pari í dag. Hann er því á pari samtals og ætti það að duga honum í gegn um niðurskurð ef ekkert slæmt gerist á þeim 6 holum sem eftir eru.
Birgir Leifur er sem stendur í 37. – 45. sæti en 71. – 83. sætið er sem stendur á +2 yfir pari. Það er því allt sem bendir til þess að Birgir nái í gegn um niðurskurð líkt og hann gerði árið 2004 og 2001.