Birgir Leifur endaði á +5 höggum yfir pari á fyrsta degi á Dunhill Classic mótinu á Leopard Creek vellinum í Suður-Afríku í dag.
Birgir byrjaði erfiðlega í morgun og var kominn +4 yfir par eftir 6 holur. 3 skolla, 1 fugl og 1 skramba. Hann fékk síðan 2 skolla og 1 fugl á þeim 12 holum sem eftir voru.
Birgir Leifur endaði í ca. 120. sæti. Hann á rástíma af 1. teig á morgun sunnudag klukkan 11:55 að íslenskum tíma.