Birgir Leifur í sveiflu í Sveitakeppni GSí í fyrra Birgir Leifur var rétt í þessu að ljúka leik á MAN NO Open golfmótinu í Austurríki sem hófst í dag. Mótið er liður í Áskorendamótaröð Evrópu. Birgir Leifur endaði hringinn á -1 höggi undir pari með 3 fugla og 2 skolla og lék því samtals á 69 höggum.

 Hann er sem stendur í 14. – 21. sæti þegar um helmingur keppenda hafa lokið leik.